Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er vinsæll áfangastaður fyrir alla fjölskylduna þar sem gestir á öllum aldri geta notið samveru og skemmtunar. Í garðinum gefst einstakt tækifæri til að kynnast íslenskum húsdýrum sem og villtum spendýrum sem lifa á Íslandi. Garðurinn býður einnig upp á fjölbreytt leiksvæði, spennandi leiktæki og skjólgóð svæði sem gera gestum kleift að njóta útiveru í notalegu umhverfi allt árið um kring.

Ylströndin í Nauthólsvík

Ylströndin í Nauthólsvík

Ylströndin í Nauthólsvík er einstakur baðstaður í Reykjavík þar sem náttúra og manngert umhverfi mætast á skemmtilegan hátt. Þar myndar gylltur sandur fallega strönd við lón þar sem heitt vatn og kaldur sjór renna saman, sem gerir gestum kleift að njóta strandarinnar allt árið um kring. Við ströndina er góð aðstaða, þar á meðal heitir pottar, gufubað og búningsaðstaða.

Yfirlit yfir gufunesbæ

Frístundagarðurinn við Gufunesbæ​

Á túninu við Gufunesbæ er búið að gera skemmtilegt útivistarsvæði fyrir fjölskyldur og börn. Garðurinn er fjölskylduvænt útivistarsvæði þar sem m.a. er að finna ævintýrahól með göngum, leikkastala, vatnsleiktæki, lítinn burstabæ fyrir yngstu börnin og einnig ærslabelg, Petanque völl, folf braut, rathlaups braut og strandblak. Í garðinum er grillskýli með þremur kolagrillum.

Stólalyfta á skíðasvæði

Skíðasvæðin í borginni

Tækifæri til skíðaiðkunar í og við borgina eru fjölbreytt. Þrjár skíðalyftur fyrir börn og byrjendur eru starfræktar innan borgarinnar. Gönguskíðaspor eru lögð á ýmsum stöðum og skíðasvæðin í Bláfjöllum og Skálafelli eru skammt utan borgarmarkanna.

""

Frisbígolf

Frisbígolf, eða folf, er einfaldur og skemmtilegur leikur sem hentar öllum aldurshópum. Í Reykjavík eru níu frisbígolfvellir og aðgangur að þeim er ókeypis. Það eina sem þarf er frisbídiskur og góða skapið!

Vellirnir eru staðsettir í Seljahverfi, Elliðaárdal, Grafarholti, Grafarvogi, Kjalarnesi, Fossvogsdal, Laugardal og á Klambratúni.

Fólk að ganga

Út um allt

Út um allt - útivist á höfuðborgarsvæðinu er upplýsingavefur um útivistarsvæði, göngu- og hjólaleiðir á svæðinu. Vefnum er ætlað að gefa yfirsýn yfir þá fjölbreyttu möguleika sem höfuðborgarsvæðið býður upp á í tengslum við útivist og spannar öll sveitarfélögin á svæðinu.