Seljatjörn

Útivistarsvæði

Seljatjörn
109 Reykjavík

Seljatjörn á sólríkum degi.

Um Seljatjörn

Í miðju Seljahverfi í Breiðholti er allstórt grænt svæði umhverfis manngerða settjörn er ber heitið Seljatjörn. Er svæðið í kringum tjörnina vinsælt útivistarsvæði ekki síst hjá börnum og eldri borgurum en bæði skólar og heimili fyrir aldraða eru í nágrenni svæðisins. Í garðinum er lystihús og vistvæn leiktæki fyrir börn. Lokið var við hönnun og gerð Seltjarnar og almenningsgarðsins í kringum tjörnina árið 1990.

Grunnupplýsingar

Aldur: 1990.

Samgöngur:

  • Bílastæði við Seljakirkju.
  • Strætóleiðir: 3-4. Stöð: Hólmasel.

Þar er að finna: Garðyrkja – Bekkir – Leiktæki – Lystihús.