Frístundagarðurinn

við Gufunesbæ

 

Frístundagarðurinn

Á túninu við Gufunesbæ er búið að gera skemmtilegt útivistarsvæði fyrir fjölskyldur og börn. Ævintýrahóllinn er með göng sem liggja í gegnum hann og eru fjórar inngönguleiðir. Upp á hólnum er pallur og er hægt að klifra upp á með því að nota kaðal.

Leikkastalinn er risa stór ævintýraheimur út af fyrir sig. Í vatnsleiktækinu er mögulegt að sulla með vatn og sand ásamt því að vaða í tjörnunum. 

Einnig er kominn á svæðið lítill burstabær fyrir yngstu börnin. Þá er þar ærlsabelgur, Petanque völlur, folf braut, rathlaups braut og strandblak. Loks er grillskýli með þremur kolagrillum. Garðurinn er fjölskylduvænt útivistarsvæði.

Folfvöllur

Við Gufunesbæ er átján holu frisbígolfvöllur og er öllum heimill aðgangur sér að kostnaðarlausu.

 

Sex holu hringur er ákjósanlegur fyrir þá sem vilja prufa og tekur það um klukkustund fyrir hóp að fara þann hring.

 

Folf er einfaldur og skemmtilegur leikur sem hentar öllum aldurshópum.

Stelpa og strákur leika frisbígolf

Rathlaupsbraut

Við Gufunesbæ er rathlaupabraut, (orienterin).

 

Rathlaup er krefjandi víðavangshlaup með rötun og að lesa í umhverfi sem einn af aðalþáttum.

 

Brautin hefur 20 stöðvar sem búið er að merkja á sérstakt rathlaupakort. 

Þátttakandi í rathlaupi nálgast eina stöðina.

Kort af svæðinu

Hafa samband

  • Frístundagarðurinn við Gufunesbæ
  • Við Gufunesveg, 112 Reykjavík
  • 411 5615
  • gufunes@reykjavik.is