Arnarhóll

Útivistarsvæði

Arnarhóll
101 Reykjavík

""

Um Arnarhól

Arnarhól þekkja allir Reykvíkingar en hóllinn trónir yfir Kvosinni og Lækjargötu í norðaustri. Af hólnum er fagurt útsýni yfir miðborgina og sundin. 

Arnarhóll er gamalt bæjarstæði en nú er þar opið svæði með göngustígum og bekkjum. Efst á Arnarhól trónir eitt helsta kennileiti Reykjavíkur, styttan af Ingólfi Arnarsyni landnámsmanni í Reykjavík eftir Einar Jónsson myndhöggvara. Við Arnarhól norðan- og austanverðan standa ýmsar merkisbyggingar svo sem Þjóðmenningarhúsið, Seðlabanki Íslands, Hæstiréttur Íslands og bæði fjármála- og efnahagsráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneytið. Á Arnarhóli safnast fólk oft saman á hátíðisdögum (sérstaklega á Þjóðhátíðardaginn 17. Júní) og fylgist með tónleikum og annarri skemmtidagskrá.

Grunnupplýsingar

Samgöngur:

  • Bílastæði við Hverfisgötu, Ingólfsstræti, Kalkofnsveg, Lindargötu, Lækjargötu, Sölvhólsgötu og Tryggvagötu. Gjaldskylda virka daga frá 10-18 og laugardaga frá 10-16.
  • Strætóleiðir: 1-3-6-11-12-13-14. Stöðvar: Harpa – Lækjartorg – MR.

Þar er að finna: Bekkir - Listaverk - Garðyrkja - Hátíðahöld - Merkilegar byggingar

Saga

  • Á Arnarhóli var búskapur frá fornu fari en elstu heimildir um búsetu eru frá 16. Öld.
  • Búskapur lagðist niður á Arnarhóli árið 1828 og var býlið rifið skömmu síðar.
  • Jörðin Arnarhóll var færð undir land Reykjavíkur árið 1835.
  • Stytta Einars Jónssonar af Ingólfi Arnarsyni var vígð hátíðlega í febrúar 1924.
  • Tilvist Arnarhóls sem almenningsútivistarsvæði var fyrst skilgreind á skipulagi árið 1927.

Heimildir

  • Bragi Bergsson. 2012. Almenningsgarðar á Íslandi. Ritgerð til MA-prófs. Háskóli Íslands, Hugvísindasvið.