Menning

Reykjavík er lifandi menningarborg þar sem alltaf er eitthvað um að vera

Danshópur sýnir dans á Klapparstíg á Menningarnótt.

Menning í Reykjavík

Reykjavík er lifandi borg þar sem fjölbreytt menningarstarf blómstrar allt árið um kring. Hér býr og starfar fólk úr ólíkum listgreinum og skapar lifandi umhverfi sem vekur athygli gesta borgarinnar.

Fjölbreytt dagskrá er í boði, meðal annars sýningar, tónleikar, fyrirlestrar og vinnustofur. Menningarkort Reykjavíkur gefur kost á að njóta alls þess sem söfn borgarinnar hafa upp á að bjóða.

Við hvetjum þig til að kynna þér framboðið, finna næsta viðburð og upplifa menninguna í menningarborginni Reykjavík.

Listasafn Reykjavíkur

Listasafn Reykjavíkur

Listasafn Reykjavíkur er lifandi og framsækið listasafn sem er að finna á þremur stöðum í borginni, í Hafnarhúsinu, á Kjarvalsstöðum og í Ásmundarsafni. Þar eru reglulega haldnar sýningar á verkum eftir þrjá af þekktustu listamönnum þjóðarinnar, Erró, Kjarval og Ásmund Sveinsson.

Bókahillur í bókasafninu

Borgarbókasafn Reykjavíkur

Borgarbókasafn Reykjavíkur starfar á átta stöðum í borginni. En bókasafn snýst ekki bara um bækur heldur fer þar fram alls konar starfssemi sem styrkir nærsamfélagið og sinnir fjölbreyttum hópum.

Hús á Árbæjarsafni.

Borgarsögusafn Reykjavíkur

Borgarsögusafn Reykjavíkur skráir og varðveitir menningarminjar í Reykjavík og tryggir að allir hafi sem bestan aðgang að menningararfi borgarinnar. Á fimm einstökum sýningarstöðum safnsins bíður heillandi heimur fornleifa, sögulegra húsa, ljósmynda og lifandi frásagna sem sýna hvernig borgin og íbúar hennar hafa þróast frá landnámi til dagsins í dag.

Reykjavikurkortið

Menningarkort Reykjavíkur

Menningarkort Reykjavíkur er þinn aðgangur að menningarlífi borgarinnar. Innifalið í kortinu eru 14 söfn, 50+ sýningar, 300+ viðburðir, bókasafnsskírteini og fjöldi tilboða.

Tónleikar með strengjahljóðfærum

Tónlistarborgin

Markmið Tónlistarborgarinnar er að efla Reykjavík sem tónlistarborg með því að koma á fót öflugu stuðningskerfi og skapa hagstæð skilyrði fyrir gróskumikla tónlistarstarfsemi um alla borg. Eins að ímynd íslenskrar tónlistar verði samofin ímynd Reykjavíkur sem menningarborgar og áhugaverðs áfangastaðar.

Mynd af Gröndalshúsi í sól

Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO

Frá árinu 2011 hefur borgin verið aðili að netverkinu Skapandi borgir UNESCO ásamt um 400 öðrum borgum. Í því felst mikil viðurkenning á stöðu bókmennta í Reykjavík. Bókmenntaborgin leggur rækt við orðlistalíf í víðum skilningi jafnt innanlands sem á erlendum vettvangi. Einnig heldur hún utan um starfsemi Gröndalshúss.