Einarsgarður
Útivistarsvæði
Laufásvegur/Hringbraut
101 Reykjavík
Um Einarsgarð
Einarsgarður er snotur, lítill almenningsgarður er liggur fyrir ofan Gömlu Hringbraut og fyrir neðan mót Laufásvegar og Barónsstígs, til móts við hús gamla Kennaraskólans.
Einarsgarður á rætur sínar að rekja til Gróðrarstöðvarinnar sem starfaði þar milli 1899 og 1931. Garðurinn heitir í höfuðið á Einari Helgasyni garðyrkjufræðingi.
Saga
- Gróðrarstöðin starfaði í landi Hallskots sunnan við Þingholtin milli 1899 og 1931 og fór þar fram ýmis garðyrkja á yfir 4 hektara svæði undir stjórn Einars Helgasonar garðyrkjufræðings. Mikið af eldri trjám Reykjavíkur eiga uppruna sinn í gömlu Gróðrarstöðinni.
- Gróðrarstöðin lagðist niður 1931 og árið 1943 varð skrúðgarður hennar eign Reykjavíkur og var breytt í almenningsgarð. Þá voru gerð trjá- og blómabeð, lagðar grasflatir og byggðar steinhæðir ásamt stígum. Garðurinn var opnaður almenningi árið 1948.
- 1954 var höggmyndin Pomona eftir danska listamanninn Johannes Bjerg vígð.
Heimildir
- Bragi Bergsson. 2012. Almenningsgarðar á Íslandi. Ritgerð til MA-prófs. Háskóli Íslands, Hugvísindasvið.
- Einar Helgason. 1902. "Gróðrarstöðin". Búnaðarritið. Reykjavík.
- "Einar Helgason garðyrkjufræðingur og gróðrarstöðin í Reykjavík". Óðinn, 1. júní 1909, bls. 17-18.