Raddir barna í ákvörðunum sem þau varða

Lýsing á aðgerð og markmið

Aðgerð Græna plansins

Markmiðið er að öll börn hafi rödd í lýðræðislegu ákvörðunarferli, ekki síst þau þau börn sem tilheyra minnihlutahópum. Áhersla verði lögð á að börn fái tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri um ákvarðanir sem þau varðar í skóla- og frístundastarfi. Mótuð verði viðmið um val á börnum til þátttöku til að tryggja fjölbreytileika. 

 

Framkvæmdatími

Áætluð verklok eru á seinni helmingi ársins 2023

Staða: Lokið

Stöðulýsing 1. janúar 2024

Aðgerð lokið. Stuðningsefni komið í verkfærakistu menntastefnu; myndbönd um skóla-, nemenda- og unglingaráð, viðmið um val fulltrúa í ráð, demó/myndbönd/glærur að vinnusmiðjum til að halda innan borgarhluta með fulltrúum í ráðum og fjölbreytt verkfæri til stuðnings lýðræðisstarfi í skóla- og frístundastarfi. Samstarf við Almannaheill í gangi vegna lýðræðishátíðar sem á að gera tilraun með haustið 2025. 95% skóla með fulltrúa nemenda í skólaráði, 62% skóla með virk nemendaráð, 13% skóla halda nemendaþing, 51% frístundaheimila með barnaráð. Haldnar voru fimm vinnusmiðjur með fulltrúum nemendaráða í hverjum borgarhluta ásamt kennurum og starfsfólki úr félagsmiðstöðvastarfi. Komið í markvissa framkvæmd og tekið út úr aðgerðaáætlun Græna plansins.

Eldri stöðulýsingar

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá eldri stöðulýsingar sem veita upplýsingar um framvindu aðgerðarinnar frá upphafi (ef þú ert í síma er betra að snúa símanum á hlið).
  Tímasetning Lýsing framvindu
  Júlí 2023

Stuðningsefni komið í verkfærakistu menntastefnu; myndbönd um skóla-, nemenda- og unglingaráð, viðmið um val fulltrúa í ráð, demó/myndbönd/glærur að vinnusmiðjum til að halda innan borgarhluta með fulltrúum í ráðum og fjölbreytt verkfæri til stuðnings lýðræðisstarfi í skóla- og frístundastarfi. Samstarf við Almannaheill í gangi vegna lýðræðishátíðar sem á að gera tilraun með haustið 2025. 95% skóla með fulltrúa nemenda í skólaráði, 62% skóla með virk nemendaráð, 13% skóla halda nemendaþing, og 51% frístundaheimila með barnaráð.

  Janúar 2023   Allir geta sótt og nýtt mælikvarða menntastefnunnar. Réttindaskólum og réttindafrístund og leikskólum fjölgar jafnt og þétt. Fræðsla er í boði.
  Júlí 2022 Ný framkvæmdaáætlun unnin, afgreidd og sett í farveg. Um er að ræða áframhaldandi verkefni sem verður í gangi árin 2022-2024. Til að fylgjast með framvindu er stöðumat gert tvisvar á ári, um áramót og í lok júní. 

Tenging aðgerðar við stefnur Reykjavíkurborgar:

 

Svið innan Reykjavíkurborgar:

 

Tengdar aðgerðir

Taflan hér fyrir neðan inniheldur þær aðgerðir sem tengjast þessari aðgerð og hægt er að nálgast frekari upplýsingar með því að smella á "heiti aðgerðar" í töflunni (ef þú ert í síma er betra að snúa símanum á hlið).
Heiti aðgerðar Verklok Svið
Fræðsla og ráðgjöf um loftslagsmál og umhverfi
fyrir starfsfólk í skóla- og frístundastarfi​
2024 Skóla- og frístundasvið
Draga úr kolefnisspori - Innleiðing grænskjáa í grunnskólum 2024 Skóla- og frístundasvið
Aukið aðgengi að búnaði fyrir starfsfólk og börn í skóla- og frístundastarfi 2023 Skóla- og frístundasvið
Ráðgjöf og starfsþróun fyrir starfsfólk skóla- og frístundastarfs 2024 Skóla- og frístundasvið
Heilsueflandi skóla- og frístundastarf 2025 Skóla- og frístundasvið
Vitundarvakning um kynheilbrigði 2024 Skóla- og frístundasvið
Raddir barna í ákvörðunum sem þau varða 2023 Skóla- og frístundasvið
Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna 2023 Skóla- og frístundasvið
Innleiðing farsældarlaga 2025 Skóla- og frístundasvið
Úthlutun fjármagns í leikskólum og frístundastarfi 2025 Skóla- og frístundasvið
Samstarf við Menntavísindasvið HÍ 2022 Skóla- og frístundasvið
Þróunar-og nýsköpunarsjóður skóla- og frístundasviðs 2024 Skóla- og frístundasvið
Stefna um byggingar fyrir skóla- og frístundastarf 2023 Skóla- og frístundasvið
Umhverfis- og skipulagssvið
Samnýting á skóla- og frístundahúsnæði 2024 Skóla- og frístundasvið
Velferðarsvið
Starfsþróun um mál og læsi 2023 Skóla- og frístundasvið
Aukið menningarnæmi og menningarlæsi 2023 Skóla- og frístundasvið
Regnbogavottun í skóla- og frístundastarfi 2025 Skóla- og frístundasvið
Nýsköpunarstofa menntunar 2023 Skóla- og frístundasvið
Menningarnámskrá Reykjavíkurborgar 2024 Skóla- og frístundasvið