2. Látum draumana rætast

Borg fyrir fólk

Markmið Græna plansins í samfélagsmálum

Markmið Reykjavíkurborgar er að í kraftmiklu skóla- og frístundastarfi öðlast börn og unglingar menntun og reynslu til að láta drauma sína rætast og hafa jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag.

Menntastefna Reykjavíkurborgar hvetur okkur til að þróa skóla- og frístundastarf í skapandi lærdómssamfélag sem mætir þörfum 21. aldarinnar. Um leið er henni ætlað að mæta þeim áskorunum er felast í stöðugum umhverfis, samfélags- og tæknibreytingum. 

Leiðarljós stefnu frístundaþjónustu er að bjóða upp á fjölbreytta og heilsueflandi frístundaþjónustu sem hvetur til virkrar þátttöku, sköpunar og betra samfélags.

  • Börn öðlast sterka sjálfsmynd, góða félagsfærni, trú á eigin getu og ná árangri
  • Börnin lesa sér til gagns og gamans, afla sér þekkingar og öðlast skilning á samfélagi og náttúru. Þau sýna frumkvæði, skapandi og gagnrýna hugsun og tileinka sér heilbrigðan lífsstíl
  • Börn vaxa, dafna og una sér saman í lýðræðislegu samfélagi sem einkennist af mannréttindum og virðingu fyrir fjölbreytileika mannlífs. Þau hafa áhrif á nám sitt, líðan og umhverfi
  • Í skóla- og frístundastarfi borgarinnar starfar framsækið starfsfólk sem rýnir eigin starfsaðferðir, vinnur saman að sameiginlegum markmiðum og tileinkar sér nýja starfs- og kennsluhætti
  • Uppeldi og menntun barna og unglinga er samfélagslegt verkefni.  Fjölskyldur barna í skóla- og frístundastarfi eru mikilvægir samstarfsaðilar þeirra sem þar starfa og deila með þeim ábyrgð á menntun og uppeldi

Aðgerðir

Heiti aðgerðar

Staða Verklok Uppfært Svið

Fræðsla og ráðgjöf um loftslagsmál og umhverfi
fyrir starfsfólk í skóla- og frístundastarfi​

Í vinnslu 2024 Júlí 2023

Skóla- og frístundasvið

Draga úr kolefnisspori - Innleiðing grænskjáa í grunnskólum Í vinnslu 2024 Júlí 2023 Skóla- og frístundasvið
Aukið aðgengi að búnaði fyrir starfsfólk og börn í skóla- og frístundastarfi Í vinnslu 2024 Júlí 2023 Skóla- og frístundasvið
Ráðgjöf og starfsþróun fyrir starfsfólk skóla- og frístundastarfs Í vinnslu 2024 Júlí 2023 Skóla- og frístundasvið
Heilsueflandi skóla- og frístundastarf Í vinnslu 2024 Júlí 2023 Skóla- og frístundasvið
Vitundarvakning um kynheilbrigði Í vinnslu 2024 Júlí 2023 Skóla- og frístundasvið
Raddir barna í ákvörðunum sem þau varða Í vinnslu 2024 Júlí 2023 Skóla- og frístundasvið
Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna Í vinnslu 2024 Júlí 2023 Skóla- og frístundasvið
Innleiðing farsældarlaga Í vinnslu 2024 Júlí 2023 Skóla- og frístundasvið
Úthlutun fjármagns í leikskólum og frístundastarfi Í vinnslu 2024 Júlí 2023 Skóla- og frístundasvið
Samstarf við Menntavísindasvið HÍ Lokið 2022 Janúar 2023 Skóla- og frístundasvið
Þróunar-og nýsköpunarsjóður skóla- og frístundasviðs Í vinnslu 2024 Júlí 2023

Skóla- og frístundasvið

Stefna um byggingar fyrir skóla- og frístundastarf Í vinnslu 2022 Júlí 2023 Skóla- og frístundasvið
Umhverfis- og skipulagssvið
Samnýting á skóla- og frístundahúsnæði Í vinnslu 2024 Júlí 2023 Skóla- og frístundasvið
Velferðarsvið
Starfsþróun um mál og læsi Í vinnslu 2024 Júlí 2023 Skóla- og frístundasvið
Aukið menningarnæmi og menningarlæsi Í vinnslu 2024 Júlí 2023 Skóla- og frístundasvið
Regnbogavottun í skóla- og frístundastarfi Í vinnslu 2024 Júlí 2023 Skóla- og frístundasvið
Nýsköpunarstofa menntunar Í vinnslu 2024 Júlí 2023 Skóla- og frístundasvið
Menningarnámskrá Reykjavíkurborgar Í vinnslu 2024 Júlí 2023 Skóla- og frístundasvið