Forvarnaráætlun barna og ungmenna 2024-2026
Lýsing á aðgerð og markmið
Aðgerð Græna plansins
Markmið hennar er að bregðast við helstu áskorunum sem eru til staðar í forvarnarmálum varðandi börn og ungmenni í Reykjavík. Forvarnarstarf fer fram í nánasta umhverfi barna og ungmenna þar sem skóla- og frístundastarf gegnir mikilvægu hlutverki. Miðstöðvar borgarhlutanna eru í lykilhlutverki við að tryggja samhæfingu og samstarf þeirra aðila sem styðja börn, ungmenni og foreldra þeirra í hverfum borgarinnar.
Framkvæmdatími
Áætluð verklok eru á seinni helmingi ársins 2026
Stöðulýsing 1. júlí 2025
Guðrún Halla Jónsdóttir var ráðin inn sem forvarnarfulltrúi með það að markmiði að fylgja á eftir aðgerðum forvarnaráætlunar. Sérstaklega ber að nefna aðgerðir og samantektir sem snúa að ofbeldi barna og ungmenna í tengslum við hópamyndanir og óæskilega hegðun.
Eldri stöðulýsingar
| Tímasetning | Lýsing framvindu | |
| Júlí 2025 |
Guðrún Halla Jónsdóttir var ráðin inn sem forvarnarfulltrúi með það að markmiði að fylgja á eftir aðgerðum forvarnaráætlunar. Sérstaklega ber að nefna aðgerðir og samantektir sem snúa að ofbeldi barna og ungmenna í tengslum við hópamyndanir og óæskilega hegðun. |
Tenging aðgerðar við stefnur Reykjavíkurborgar:
Aðgerðir
Borg fyrir fólk
- 1. Fyrir okkur öll | Græna planið Góð líðan íbúa og að við upplifum að Reykjavík sé fyrir okkur öll.
- 2. Látum draumana rætast | Græna planið Börn og unglingar láta draumana sína rætast.
- 3. Menning og listir verða samofin borgarlífinu | Græna planið Öll hafi jöfn tækifæri til að taka þátt í njóta menningar og lista.
- 4. Íþróttir fyrir öll | Græna planið Flest stundi reglulega íþróttir eða aðra hreyfingu.
- 5. Bætt lýðheilsa | Græna planið Heilsueflandi, sjálfbært og fjölskrúðugt borgarsamfélag.