Betri vinnutími
Í flestum kjarasamningum sem voru undirritaðir veturinn 2019-2020 er kveðið á um heimild til að gera breytingar á skipulagi vinnutíma og stytta vinnuvikuna í allt að 36 virkar vinnustundir á viku. Þetta á þó ekki við um öll stéttarfélög því ýmsir hópar eru með annars konar útfærslu á vinnuskyldu en hefðbundna 40 stunda vinnuviku, svo sem grunnskólakennarar.
Markmið betri vinnutíma
Meginmarkmið breytinganna er að stuðla að umbótum í starfsemi starfsstaða, bæta vinnustaðamenningu og nýtingu vinnutíma án þess að draga úr skilvirkni og gæðum þjónustu, tryggja betur gagnkvæman sveigjanleika og stuðla þannig að bættum lífskjörum og samræmingu vinnu og einkalífs. Breytingar á vinnufyrirkomulagi og fækkun vinnustunda krefst undirbúnings og skipulagningar hjá starfsfólki og stjórnendum.
Betri vinnutími dagvinnufólks
Bætt vinnustaðamenning og betri nýting vinnutíma er meðal helstu markmiða styttingar vinnutíma. Forsenda styttingar hjá dagvinnufólki er samtal um betri vinnutíma á hverjum starfsstað fyrir sig. Útfærslan tekur mið af starfsemi hvers staðar og getur því verið með ólíkum hætti milli starfsstaða.
Betri vinnutími vaktavinnufólks
Samið var um umfangsmiklar breytingar á vinnufyrirkomulagi og launamyndunarkerfi í vaktavinnu til að bæta starfsumhverfi starfsfólks og stjórnenda. Markmið breytinganna er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og er þeim ætlað að auka jafnvægi á milli vinnu og einkalífs þannig að störf í vaktavinnu verði eftirsóknarverðari. Þá eiga þær að auka stöðugleika í mönnun, draga úr þörf fyrir yfirvinnu ásamt því að bæta öryggi og þjónustu við almenning.
Verkfærakista
Í verkfærakistu betri vinnutíma má finna leiðbeiningar, kynningar, skapalón, gátlista, reglur og margt fleira sem er hjálplegt við innleiðingu betri vinnutíma.