Rannsóknir og borgarþróun

Reykjavíkurborg tekur þátt í nokkrum alþjóðlegum rannsóknarverkefnum með áherslu á margvíslega þekkingaröflun og upplýsingamiðlun sem gagnast við framsækna borgarþróun. Einnig tekur Reykjavík þátt eða styður við ýmis nýsköpunarverkefni og samstarf. Hér er gefin yfirsýn yfir helstu verkefnin sem eru í gangi.
Alþjóðlegt samstarf um rannsóknir og borgarþróun
Reykjavík vill búa til frjóan farveg þar sem ólíkir straumar sameinast og laða til sín hugmyndaríkt og atorkusamt fólk - eins og segir í nýrri atvinnu- og nýsköpunarstefnu Reykjavíkur:
SPARCS
SPARCS – er rannsóknarverkefni á sviði orkuskipta, sjálfbærni og kolefnishlutleysis. Það er samstarfsverkefni þrjátíu aðila sem aðstoða evrópskar borgir við að verða sjálfbær, vistvæn og kolefnishlutlaus samfélög. SPARCS er stytting á Sustainable energy-Positive and zero-cARbon CommunitieS, kostað af Horizon 2020 rammaáætlun ESB.
- Upplýsingasíða SPARCS
- Aðalvefur SPARCS samstarfsins
AMIGOS
AMIGOS – lítur að bættu öryggi og upplifun ólíkra vegfarenda við samgöngukjarna. Umbreytingar við Hlemm og nágrenni á næstu árum, verða helsta viðfangsefnið í framlagi Reykjavíkur til verkefnisins. AMIGOS, stendur fyrir „Active Mobility Innovations for Green and safe city sOlutionS”, kostað af Horizon Europe rammaáætlun ESB.
- Upplýsingasíða fyrir AMIGOS er í vinnslu (september 2023)
IMPULSE
IMPULSE – rannsóknarverkefnið snýst um hönnun og tilraunir með andlitsgreiningu í rafrænni auðkenningu fyrir þá sem kysu að nota þá lausn frekar en þau rafrænu skilríki sem algengust eru í dag. IMPULSE stendur fyrir Identity Management in PUbLic SErvices, kostað af Horizon 2020 rammaáætlun ESB.
- Ráðstefna EDIH-IS CoLab#4 ásamt IMPULSE verkefninu um áhrif stafrænnar umbreytingar á opinbera þjónustu
- Aðalvefur IMPULSE samstarfsins
GreenIn Cities
GreenIn Cities – er nýtt verkefni, sem stendur í samningaferli og hefst vonandi öðruhvoru meginn við áramótin 2023-2024, kostað af Horizon Europe rammaáætlun ESB.
- Upplýsingasíða verður birt þegar verkefninu verður ýtt úr vör.
NetZeroCities (NZC)
NetZeroCities áætlunin styður við leiðangur evrópskra borga í átt að kolefnishlutleysi og snjallvæðinu fyrir 2030. Leiðangurinn byggist á víðtæku samstarfi þvert á borgir, við fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, stjórnvöld, félagasamtök og íbúa. Meðal annars verður samstarf borganna formgert með sérstökum Loftslagsborgarsamningi, sem aðlagaður er hverri borg fyrir sig. NZC heldur líka utanum svo-kallaðar "Pilot City" og "Twin City" áætlanir og styður við verkefnin sem veljast þar inn.
"Pilot City" hefur verið þýtt á íslensku sem Tilraunaborg og "Twin City" sem Tvíburaborg.
- Græna Planið: Loftslagssamningur – Evrópusamstarf um kolefnishlutlausar og snjallar borgir 2030
- Aðalvefur NetZeroCities
NZC - Tvíburaborg
Í september 2023 var tilkynnt að Reykjavíkurborg yrði tvíburaborg Lahti í Finnlandi sem gegnir hlutverki svokallaðra Tilraunaborga undir NZC áætluninni. Formlegt samstarf á milli Reykjavíkur og Lahti er skipulagt af NZC sem mun styðja við öll samskipti borganna til loka verkefnisins í maí 2025. Samstarf Reykjavíkur og Lahti snýst um þekkingarmiðlun og þróun lausna í átt að sjálfbærum samgöngum og öflugum aðferðum til að styðja sem best við breytta samgöngumáta íbúanna.
- Um Lahti sem NZC Tilraunaborg
- Fréttatilkynning NZC um Tvíburaborga áætlunina, 25. sept. 2023
Nýsköpunarsamstarf og hraðlar
Reykjavík styður við nýsköpunar í Reykjavík, svo sem frumkvöðlasetur, klasasamstarf, hraðla og þekkingarsetur á sviði grænnar nýsköpunar. Hér má sjá birtingarmyndir þeirrar atvinnuþróunar:
Smiðjur og frumkvöðlasetur
Klasasamstarf
- Orkuklasinn stendur fyrir viðburðum orkutengdra verkefna
- Íslenski sjávarklasinn er samstarfsvettvangur fyrirtækja og frumkvöðla í sjávarútvegi
- Íslenski ferðaklasinn hefur það hlutverk að efla samkeppnishæfni og auka verðmætasköpun íslenskrar ferðaþjónustu
Nýsköpunarverkefni og hraðlar
Reykjavíkurborg tekur þátt í Klak – Icelandic Startups, sem hjálpar frumkvöðlum að raungera hugmyndir og leiða til mögulegrar fjárfestingar. Borgin styður starfið og ýmsa hraðla og viðburði svo sem Hringiðu og Gulleggið.
Reykjavíkurborg er bakhjarl Snjallræðis, sem stofnað var af Höfða friðarsetri árið 2018. Snjallræði er 16 vikna vaxtarrými (e. incubator) sem styður við öflug teymi sem brenna fyrir lausnum á áskorunum samtímans og styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Nýsköpunarvikan
Nýsköpunarvikan hefur verið að festa sig í sessi sem viðurkenndur alþjóðlegur vettvangur.

Þekkingarkjarnar og þróunarreitir
Í Reykjavík eru svæði sem fá sérstaka athygli sem áhugaverðir þekkingarkjarnar og þróunarreitir.
Innan þekkingarkjarnanna er unnið í samstarfi við rekstrar og hagaðila á svæðinu. Unnið er að framgangi þessara þekkingarkjarna:
- Vísindaþorpið í Vatnsmýri | Reykjavík Science City
- Miðborgin
- Gufunes – þorp skapandi greina
Skapandi borg - árið 2020 bauð borgin fram tímabundið húsnæði fyrir skapandi greinar og samfélagsleg verkefni á þremur stöðum í borginni: í Gufunesi, Skerjafirði og Bryggjuhverfi.
Á stærri þróunarreitum er unnið að því að leggja grunninn og kallað eftir nýjum aðilum til að koma inn á áhugaverð svæði:
- Álfsnes
- Hólmsheiði
- Esjumelar
Viltu nánari upplýsingar?
Hafðu samband við okkur hjá atvinnu- og borgarþróunarteymi - við vinnum á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara - skoða nafnalista og símanúmer eða sendu á okkur tölvupóst athafnaborgin@reykjavik.is