Börn, unglingar og ungt fólk

Börnin í borginni taka þátt í kraftmiklu skóla- og frístundastarfi sem veitir þeim menntun og reynslu til að láta drauma sína rætast og hafa góð áhrif á umhverfi og samfélag. Þau eru alls staðar að úr heiminum og tala fjölmörg tungumál.
Borgin veitir öllum þessum börnum og fjölskyldum þeirra fjölbreytta þjónustu sem stuðlar að velferð þeirra og vellíðan.
Hvað viltu skoða næst?
- Leikskólar Það er leikur að læra á fyrsta skólastiginu.
- Grunnskólar Draumar geta ræst.
- Frístundastarf Það bara verður að vera gaman.
- Dagforeldrar Fyrstu skrefin að heiman.
- Tónlistarnám Tónlistin auðgar og tengir.
- Stuðningsþjónusta fyrir börn og fjölskyldur Þjónusta fyrir börn og fjölskyldur.
- Barnavernd Aðstoð fyrir börn og foreldra.
- Stafræn gróska Skapandi tækni.
- Vinnuskólinn Sumarið er tíminn.
- Náms og starfsráðgjöf Námsflokkar og fleira sniðugt.
- Hitt Húsið Miðstöð ungs fólks.
- Jafnréttisskólinn Jafnréttis- og kynfræðsla fyrir öll skólastig.
Grunnskólar
Börn byrja í grunnskóla árið sem þau verða sex ára og eru þá skólaskyld. Foreldrar hafa val um grunnskóla en ef takmarka þarf fjölda nemenda í einstaka skólum eiga nemendur forgang að sínum hverfisskóla.

Leikskólar
Reykjavíkurborg rekur yfir 60 leikskóla þar sem dvelja hátt í sex þúsund börn. Þar er haft að leiðarljósi að börnin njóti bernsku sinnar og læri og þroskist í leik og samveru.

Dagforeldrar
Í Reykjavík eru sjálfstætt starfandi dagforeldrar sem gæta barna frá 6 mánaða aldri. Borgin veitir þeim starfsleyfi og sinnir lögbundnu eftirliti með starfsemi þeirra.

Barnavernd
Barnavernd Reykjavíkur aðstoðar börn og foreldra í alvarlegum vanda við að tryggja velferð og öryggi barna til framtíðar með fjölbreyttri ráðgjöf, stuðningi og faglegum lausnum.
Tónlistarnám
Tónlistarnám er í boði fyrir börn og unglinga í öllum hverfum borgarinnar, hvort heldur er í skólahljómsveitunum eða í tónlistarskólum sem Reykjavíkurborg er með þjónustusamning við.

Frístundastarf
Í frístundstarfi er tækifæri til að læra í gegnum leik. Börn auka þroska og færni í fjölbreyttum leikjum og þrautum.

Vinnuskólinn
Meginhlutverk Vinnuskólans er að veita nemendum úr efstu bekkjum grunnskóla uppbyggileg sumarstörf ásamt fræðslu í öruggu starfsumhverfi. Öllum nemendum 8. 9. og 10. bekkja býðst að koma til starfa við fjölbreytt verkefni sem flest snúa að garðyrkju og umhirðu í borginni. Skráningarfrestur í ár er 16. maí en áfram verður hægt að skrá að honum loknum.

Stuðningsþjónusta fyrir börn og fjölskyldur
Stuðningsþjónusta fyrir börn og fjölskyldur þeirra felur í sér margþættar lausnir sem eru útfærðar eftir þörfum hvers og eins. Öflug námskeið og fræðsla, einstaklingsstuðningur, hópastarf og uppeldisráðgjöf eru meðal þess sem er í boði.

Jafningjafræðslan
Jafningjafræðslan er skipuð ungu fólki á aldrinum 16–20 ára sem fer og ræðir við annað ungt fólk um sjálfsmyndina og lífið almennt. Hugmyndafræðin er sú að ungt fólk nái betur til annars ungs fólks heldur en aðrir.

Náms og starfsráðgjöf
Námsflokkar Reykjavíkur bjóða Reykvíkingum eldri en 16 ára ný námstækifæri og ókeypis náms- og starfsráðgjöf. Lögð er áhersla á að finna nám við hæfi hvers og eins og efla sjálfsstyrk og lífsgæði.

Stafræn gróska
Stafræn gróska er stuðningsvefur fyrir innleiðingu á framsækinni og skapandi tækni í skóla- og frístundastarfi borgarinnar. Hér finnur þú meðal annars upplýsingar um námstæki, hugbúnað, persónuvernd og ýmsar leiðbeiningar fyrir starfsfólk, nemendur og foreldra.
Hitt húsið
Hitt Húsið er miðstöð ungs fólks á aldrinum 16–25 ára á sviði menningar og lista, tómstunda, upplýsinga og ráðgjafar, atvinnumála og forvarna. Í Hinu Húsinu getur ungt fólk nýtt sér aðstöðuna til að syngja, dansa, dreyma, skapa, læra, spila, funda og fleira. Ýmis félög og samtök ungs fólks hafa aðstöðu í Hinu Húsinu.