16139 EES Götusalt 2025-2026

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

EES Götusalt 2025-2026, útboð 16139

Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar f.h. Umhverfis- og skipulagssviðs óskar eftir tilboðum í götusalt til hálkueyðingar á götum veturinn 2025-2026, samkvæmt þessum útboðsgögnum. Um er að ræða almennt útboð þar sem hvaða fyrirtæki sem er getur lagt fram tilboð

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 10:00 þann 2. apríl 2025.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:30, þann 5. maí 2025.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2025