Leikskólar

Teikning tveimur börnum skoða könguló á leikskóla.

Í Reykjavík er starfræktur fjöldi leikskóla, sumir á vegum borgarinnar en aðrir sjálfstætt starfandi. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og þar læra börnin á skapandi hátt um allt milli himins og jarðar. 

Umbætur í náms- og starfsumhverfi leikskóla

Tillögur sem borgarráð samþykkti haustið 2025 og snúa að umbótum á náms- og starfsumhverfi leikskóla tóku breytingum eftir samráð við hagaðila. Tillögurnar og þær breytingar sem voru unnar í þverpólitískum stýrihóp snúa að dvalartíma barna, breyttu skipulagi og nýrri gjaldskrá.

 

 

Gott að vita áður en sótt er um leikskóla

Nokkur atriði sem er gott að vita áður en þú sækir um í leikskóla fyrir barnið þitt.

Til að barn geti byrjað í leikskóla á vegum Reykjavíkurborgar þarf það að vera með lögheimili og fasta búsetu í Reykjavík.

Teikning af tveimur börnum að lita á leikskóla.

Innritun í leikskóla

Þegar sótt er um í leikskóla vakna oft margar spurningar. Hvaða leikskóla á ég að velja? Hvernig sæki ég um? Hvernig er plássum úthlutað?

Hér finnur þú hagnýtar upplýsingar um það hvernig þú sækir um pláss í leikskóla fyrir barnið þitt og hvernig innritunarferlið virkar.

Teikning af börnum sulla í polli í leikskóla.
""

Borgarreknir leikskólar

Upplýsingar um leikskóla sem eru starfræktir af Reykjavíkurborg.

""

Sjálfstætt starfandi leikskólar

Upplýsingar um sjálfstætt starfandi leikskóla í Reykjavík.

""

Dagforeldrar

Upplýsingar um dagforeldra í Reykjavík.

Að byrja í leikskóla

Að byrja í leikskóla markar upphaf skólagöngunnar og er því stór stund í lífi bæði barns og foreldra.

Hér getur þú lesið allt um það hvernig aðlögun í leikskóla gengur fyrir sig, hvað er gott að hafa með í leikskólann, hvernig þú notar Völu og annað gagnlegt.

Teikning af fatahengi á leikskóla.

Leikskólastarfið

Hver leikskóli er sérstakur. Hér er fjallað um daglegt líf í leikskólum borgarinnar, áherslur í leik og starfi og ýmis hagnýt mál eins og hvernig á að sækja um flutning milli leikskóla eða breytingu á vistunartíma.

Teikning af myndum sem Fjóla hefur teiknað í frístund

Leikskólareiknirinn

Hver er staðan á biðlistum í leikskólum borgarinnar?

Ráðfærðu þig við Leikskólareikninn og fáðu áætlaða spá um stöðu þíns barns á biðlista.

Teikning af þremur börnum í rennibraut á leikskóla.

Viltu vinna í leikskóla?

Viltu vera fyrirmynd og skapa góðar minningar? Komdu að vinna í einum af leikskólum Reykjavíkurborgar og taktu þátt í að móta framtíð komandi kynslóða og láta drauma rætast! Viltu ekki vera með?

Getum við aðstoðað?

Þarftu frekari aðstoð eða fannstu ekki það sem þú varst að leita að? Þjónustuver borgarinnar getur aðstoðað þig í síma 411 1111, á netspjalli og í gegnum netfangið innritun.leikskolar@reykjavik.is.

Þú finnur algengar spurningar og svör við þeim á Spurt og svarað um leikskóla.

Verklag vegna fáliðunar

Verklaginu er ætlað að tryggja að fram fari mat á aðstæðum þegar skortur er á starfsfólki í leikskólum Reykjavíkurborgar, hvort sem er vegna forfalla eða annarra orsaka. Því er einnig ætlað að auðvelda leikskólastjórum skipulagningu starfsins með öryggi barna í fyrirrúmi. Verklagið gildir fyrir alla borgarrekna leikskóla.

Leikskólastjórar bera ábyrgð á því að reikna út þörf fyrir starfsmenn út frá fjölda barna og skipulagi skólastarfs. Við útreikning er tekið mið af samsetningu barnahópsins, dvalartíma barna, aldri, þörfum, samsetningu starfsmannahópsins og umfangi stuðningsþjónustu. Leikskólastjóri, stjórnunarhlutfall aðstoðarleikskólastjóra og starfsfólk í eldhúsi eru ekki talin þegar þörf á fáliðun er metin né sérhæfður stuðningsaðili barns nema skerðingin snerti viðkomandi barn. Þegar sérhæfður stuðningsaðili barns með flókna fötlun/veikindi forfallast þarf að tryggja að afleysing í húsi hafi nægilega þekkingu á þörfum barnsins til að tryggja öryggi þess.

Ef senda þarf börn heim vegna fáliðunar er lögð áhersla á að gæta jafnræðis svo að vistunarskerðing komi ekki ójafnt niður á foreldrum. Hafa skal í huga að systkini fylgist að og að börn starfsmanna í leikskólum eru ekki send heim. Fáliðun getur haft í för með sér að fella þurfi niður ákveðna þætti í starfinu.

Foreldrar greiða ekki náms- og fæðisgjald fyrir þann tíma sem þjónustan fellur niður.