Gott að vita áður en sótt er um leikskóla

Teikning af tveimur börnum að lita á leikskóla.

Nokkur atriði sem er gott að vita áður en þú sækir um í leikskóla fyrir barnið þitt.

Til að barn geti byrjað í leikskóla á vegum Reykjavíkurborgar þarf það að vera með lögheimili og fasta búsetu í Reykjavík.

Hvenær má sækja um?

  • Þú getur sótt um í leikskóla þegar barnið hefur verið skráð í Þjóðskrá. Það gerist nokkrum dögum eftir fæðingu barnsins.
  • Hversu snemma þú sækir um hefur ekki áhrif á hversu fljótt barnið fær pláss í leikskóla. Börnum er raðað á biðlista eftir kennitölu, elstu börn efst.

Hvernig sæki ég um?

Biðlistar

  • Börn fara 6 mánaða á biðlista hjá þeim leikskólum sem sótt er um, en þú getur skilað inn umsókn fyrr.
  • Biðlistinn breytist dag frá degi eftir því sem umsóknir berast, þar sem þær raðast eftir kennitöluröð.
  • Úthlutun fer fram eftir kennitöluröð svo að eldri börn fá boð um vistun á undan þeim yngri.

Stóra úthlutunin í byrjun mars

  • Miðað er við að börn sem eru 18 mánaða 1. september fái boð í leikskóla sama haust. Til dæmis börn fædd í febrúarlok 2026 og eldri fá boð um vistun í stóru úthlutun 2027.
  • Stóra úthlutunin fer fram í byrjun mars ár hvert. Þá er plássum úthlutað fyrir haustið sama ár, þegar elstu börnin í leikskólanum fara í grunnskóla.
  • Umsóknir sem berast eftir stóru úthlutun eru afgreiddar síðar og þá getur verið erfiðara að fá pláss þar sem leikskólarnir eru oftast fylltir í stóru úthlutun.

Val á leikskóla

  • Reynt er að taka val foreldra til greina.
  • Byrjað er á elsta barninu á heildarbiðlistanum, umsókn er vandlega skoðuð og reynt að bjóða pláss í leikskóla samkvæmt fyrsta vali.
  • Ef það er ekki hægt er farið í annað val, svo í þriðja val og þannig koll af kolli.
  • Fyrsta val: Veldu leikskólann sem þið viljið helst. Það er aldrei að vita hvað gerist þegar að úthlutun kemur, og þá er leiðinlegt að missa af plássi í þeim leikskóla sem þið helst viljið. Settu leikskóla systkina í fyrsta val til að auka líkur á að þau geti verið saman.
  • Önnur völ: Veldu leikskóla sem þið mynduð vilja þiggja boð á ef þið komist ekki inn á óska leikskóla.
  • Leikskólareiknirinn getur hjálpað við valið.

Hvað er í boði fyrir yngri börn?

  • Ef barnið er ekki á innritunaraldri í stóru úthlutuninni í mars (18 mánaða gamalt þann 1. september sama ár) er gott að hafa ungbarnaleikskóla með í vali eða leikskóla með ungbarnadeild, þar sem þeir geta stundum tekið við yngri börnum. Nánari upplýsingar um ungabarnaleikskóla og ungbarnadeildir.
  • Til að geta farið í ungbarnaleikskóla þarf barnið að vera yngra en tveggja ára við upphaf vistunar. Eiga því aðeins börn fædd 1. september árið á undan og yngri möguleika á að fara í ungbarnaleikskóla hjá Reykjavíkurborg.
  • Börn geta verið í ungbarnaleikskóla þar til árið sem þau verða 3 ára. Þá þurfa þau að sækja um flutning 

Aðrir möguleikar eru: