Skólatengsl í leikskólum
Fyrstu ár ævinnar eru meðal þeirra mikilvægustu í lífi hvers barns. Á þessum tíma mótast grunnurinn að sjálfsmynd, félagsfærni, námsáhuga og vellíðan. Leikskólinn er því ekki aðeins dvalarstaður barna heldur fyrsta skólastigið og mikilvægur vettvangur þar sem börn læra í gegnum leik, samskipti og daglega reynslu.
Óregluleg mæting getur haft áhrif á félagslega stöðu barnsins, þar sem það getur átt erfiðara með að mynda tengsl og fylgja hópnum. Einnig geta myndast eyður í námi og færniþroska, sem annars þróast jafnt og þétt með daglegri þátttöku.
Skólatengsl er lykilþáttur í farsæld barnsins
Markmið með góðum skólatengslum er að:
- Stuðla að öryggi og vellíðan barnsins
- Efla félagsleg tengsl og þátttöku í hópnum
- Tryggja samfellu í námi og þroska
- Styðja við samstarf heimilis og leikskóla
- Grípa snemma inn í ef áhyggjur vakna
Foreldrar
Mikilvægt er að foreldrar láti vita ef barnið er veikt eða í leyfi, og að leitast sé við að halda reglufestu í mætingu þegar því verður við komið. Mikilvægt er að byrja ekki á því að „þrýsta“ á barnið heldur byrja á því að skilja. Foreldrar geta skoðað út frá eftirfarandi þáttum:
- Hegðun og líðan barnsins
- Halda ró og festu - Stutt, hlý og ákveðin kveðja virkar best
- Byggja upp jákvætt viðhorf barnsins til leikskólans
- Halda rútínu - Fyrirsjáanleiki = öryggi
- Gefa barninu tækifæri til að hafa hlut með sér í leikskólann til að halda á - hjálpar við að tengja heimili og leikskóla
- Tala við barnið eftir daginn - styrkir jákvæða upplifun
Börn
Það er eðlilegt að börn taki tímabil þar sem það reynist þeim erfitt að fara frá foreldri, en með ró, reglufestu og góðu samstarfi tekst yfirleitt að skapa öryggi. Mikilvægt er að bregðast snemma við og styðja barnið með hlýju, skýrleika og samvinnu. Mikilvægt er að taka lítil skref í einu. Það mætti byrja á styttri dögum og lengja smám saman. Byggja upp öryggi barnsins smátt og smátt með ákveðinni rútínu m.a. með því að hafa:
- Samskonar kveðjustund daglega
- Sömu byrjun á deginum
- Bjóða upp á myndir á vegg sem sýna tilfinningar, barnið geti þannig sagt hvernig því líður.
Starfsfólk
Mælt með því að biðja foreldra um að láta vita ef barn kemur seinna en kl. 9:00. Haft er samband við foreldra ef það á við. Gott er að upplýsa foreldra um hver starfar á deildinni, það mætti gera með því að hafa nöfn og stöðu starfsfólks sýnileg í forstofu deildarinnar. Hvenær þarf að bregðast meira við?
Ef barnið:
- Grætur eða streitist gegn mætingu í langan tíma
- Sýnir mikinn kvíða eða vanlíðan
- Vill alls ekki fara í leikskólann
Þá er mikilvægt að:
- Setjast niður með foreldrum
- Greina ástæðu
- Gera einstaklingsnámskrá
Og ef þarf:
- Vinna með lausnarteymi leikskólans
- Fá ráðgjafa
Ítarefni
Sterk skólatengsl í leikskóla eru fjárfesting í framtíð barnsins – framtíð sem byggir á öryggi, þátttöku, farsæld og jöfnum tækifærum til að ná sínum möguleikum.