16082 Microsoft EAS og Azure hugbúnaðarleyfi
F.h. Upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:
Microsoft EAS og Azure hugbúnaðarleyfi, útboð 16082
Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar f.h. Upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar óskar eftir tilboðum í hugbúnaðarleyfi frá Microsoft, nánar til tekið endurnýjun á EAS, Azure, CSP samningi fyrir skrifstofuumhverfi Reykjavíkurborgar, samkvæmt þessum útboðsgögnum.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:45, 13. febrúar 2025.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 17. mars 2025.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2025.