Sorphirða
Sorphirða Reykjavíkurborgar hirðir úrgang frá heimilum borgarinnar. Skylda er að vera með ílát fyrir fjóra flokka við öll heimili. Íbúar geta fjölgað eða fækkað tunnum við heimili eftir þörfum. Þegar við flokkum förum við betur með verðmæti og höfum jákvæð áhrif á umhverfið.
Skemmdar tunnur
Ílát sem sveitarfélagið útvegar eru eign Reykjavíkurborgar og sér sveitarfélagið um viðhald á þeim. Íbúar skulu ganga vel um ílátin og bera þeir ábyrgð á þrifum íláta sem þeim eru látin í té.
Ílát sem hafa skemmst eða orðið fyrir hnjaski vegna eðlilegrar notkunar, svo sem við losun, skal tilkynna til sorphirðu Reykjavíkur.
Hvað viltu skoða?
- Sorphirðudagatal Hvenær er sorpið sótt heima hjá þér?
- Flokkun í Reykjavík Hvernig er flokkað í Reykjavík?
- Spurt og svarað um sorphirðu Algengar spurningar sem við erum spurð um.
- Fjölbýlishús Hvernig virkar sorphirða í fjölbýlishúsum?
- Gjaldskrá sorphirðu Hvað kostar þetta allt?
- Tunnurnar okkar Hvað þýða litirnir á tunnunum?
Samræmt flokkunarkerfi
Notum rétta tunnu
Hvað þýða litirnir á tunnunum?
Blá tunna fyrir pappír, græn tunna fyrir plast, brún tunna fyrir matarleifar og grá tunna fyrir blandaðan úrgang.
Fjölbýlishús
Í fjölbýlishúsum þarf að eiga samráð um breytingar á fjölda og tegundum tunna. Það er vegna þess að þær hafa áhrif á þau gjöld sem íbúar greiða fyrir sorphirðu.
Aðgengi og viðhald sorptunna
Það er mikilvægt að sorphirðustarfsfólk komist óhindrað og örugglega að sorptunnum. Það sparar tíma við hirðu, fækkar tjónum, hefur áhrif á heilbrigði starfsfólks og tryggir þínu heimili betri og ódýrari þjónustu. Er aðgengið að tunnunum þínum í lagi?
Gjaldskrá
Það er ódýrara að henda minna og flokka meira! Verði breytingar á fjölda sorpíláta eða tíðni losana miðast breytingar á gjöldum við þá viku sem óskað er eftir breytingunni.