Viðhald og pöntun sorptunna

Teikning af blárri sorptunnu.

Ef tunna við heimilið þitt hefur orðið fyrir hnjaski við losun eða aðra eðlilega notkun þarf að tilkynna skemmdirnar til Sorphirðu Reykjavíkur. 

Einnig er hægt að panta eða skila tunnum ef aðstæður og þarfir breytast. 

Viðhald sorptunna

Góð sorphirða er samvinnuverkefni sveitarfélagsins og íbúa.

Sorptunnur við heimili í Reykjavík eru eign borgarinnar og sér sveitarfélagið um viðhald á þeim.

Íbúar bera þó ábyrgð á þrifum á tunnum og að ekki skapist heilsuspillandi aðstæður eða óþægindi af tunnum í þeirra umsjá. Það er því best að ganga vel um tunnurnar og passa vel upp á hreinlæti.

Ekki má fjarlægja lok eða handföng af tunnum eða breyta útliti þeirra á annan hátt. Ef tunnur skemmast og ekki er hægt að rekja skemmdirnar til eðlilegrar notkunar eða slits hefur sveitarfélagið heimild til að fara fram á að þú greiðir fyrir nýja tunnu.

Pöntun og skil á sorptunnum

Ef núverandi samsetning á tunnum hentar ekki lengur getur þú pantað eða skilað tunnu á mínum síðum.

Athugið að öll heimili þurfa að hafa að minnsta kosti eina bláa tunnu fyrir pappír, eina græna tunnu fyrir plast, eina brúna tunnu fyrir matarleifar og eina gráa tunnu fyrir blandaðan úrgang.

Ef um fjölbýlishús er að ræða þarf fulltrúi húsfélags að panta nýja tunnu fyrir hönd húsfélagsins.

Í einhverjum tilvikum bera breytingar umsýslugjald samkvæmt gjaldskrá.

Skemmdar tunnur

Tunnur sem hafa skemmst eða orðið fyrir hnjaski þarf að tilkynna til Sorphirðu Reykjavíkur.

Hafðu samband

Ábendingar er varða þjónustu Sorphirðu Reykjavíkur má senda í gegnum ábendingavef Reykjavíkurborgar

 

Sími þjónustuvers Reykjavíkurborgar er 411 1111

Netfang: upplysingar@reykjavik.is