Sorphirða um páskana
Aukin þjónusta er við sorphirðu fyrir stórhátíðir en meira fellur til af úrgangi hjá íbúum yfir hátíðir og á það einnig við um páskana. Sorphirða Reykjavíkurborgar hefur undirbúið sig eins og kostur er með lengri vinnudegi í dymbilviku og einnig var unnið laugardaginn fyrir páska.
Unnið verður allan skírdag fimmtudaginn 2. apríl. Frí verður hjá starfsfólki sorphirðu föstudaginn langa, páskadag og annan dag páska. Sorphirða hefst aftur þriðjudaginn 7. apríl og verða vinnudagar lengri ef með þarf í vikunni eftir páska. Rysjótt veðurfar getur sett strik í reikninginn.
Sorphirðan biður íbúa að huga aðgengi að sorpílátum. Slæmt aðgengi tefur sorphirðu og getur orðið til þess að ekki sé hægt að hirða sorp.
Þjónusta á grenndarstöðvum um páska
Gámar fyrir pappír og plast verða losaðir miðvikudaginn 1. apríl og laugardaginn 4. apríl. Gámar fyrir gler og málma verða tæmdir í vikunni. Hafa ber í huga að vont veður getur haft áhrif á þessa þjónustu en ekki er hægt að tæma gámana ef það er mikill vindur.
Gámar fyrir pappír og plast eru nú staðsettir á öllum stærri grenndarstöðvum en gámar fyrir gler og málma eru á öllum grenndarstöðvum höfuðborgarsvæðisins. Kort yfir grenndarstöðvar er hægt að skoða á vef Sorpu.
Endurvinnslustöðvar Sorpu eru opnar á skírdag. Lokað er föstudaginn langa, páskadag og annan í páskum. Opið er á laugardeginum.