Snjöll sorphirða
Reykjavíkurborg vinnur að því að merkja sorptunnur í eigu borgarinnar með örflögum og límmiðum.
Örflögur í sorptunnur
Markmið verkefnisins er að bæta skráningu og utanumhald tunna, auðvelda yfirsýn yfir fjölda þeirra, tegundir og staðsetningu og styðja við betri þjónustu.
Hver tunna fær örflögu með einstöku auðkenni sem tengir hana við upplýsingar eins og heimilisfang, úrgangsflokk og stærð. Á bakhlið tunnunnar verður einnig límmiði með sömu upplýsingum. Ef fleiri en eitt heimilisfang deilir sömu tunnu kemur það fram á límmiðanum.
Örflögurnar eru fyrst og fremst notaðar til að auðkenna tunnur og halda utan um eignir borgarinnar. Til framtíðar geta þær einnig nýst til að bæta upplýsingagjöf til íbúa, til dæmis ef ekki reynist mögulegt að losa tunnu á reglulegum losunardegi.