Fækkun flokka í Jafnaseli og á Dalvegi
Þann 31. mars munu endurvinnslustöðvar SORPU í Jafnaseli í Reykjavík og á Dalvegi í Kópavogi hætta að taka á móti rúmfrekum úrgangi vegna framkvæmda, svo sem múrbroti, timbri, innréttingum, flísum og húsgögnum. Athugið að þessar tvær stöðvar verða lokaðar þann 30. mars vegna breytinganna.
Áfram verður tekið á móti almennu heimilisrusli á stöðvunum, sem verða skilgreindar sem litlar endurvinnslustöðvar. Þar verður tekið á móti um 30 flokkum í stað 40 eins og verið hefur undanfarin ár.
Lengri opnunartími endurvinnslustöðva
Áfram verður tekið á móti öllum úrgangi á stærri endurvinnslustöðvum SORPU í Ánanaustum, Blíðubakka, Breiðhellu og Sævarhöfða. Sorpa hefur jafnframt lengt opnunartíma á stöðvunum. Þær opna nú kl. 9:00 og eru opnar til kl. 19:00 alla daga, að undanskilinni stöðinni í Blíðubakka sem opnar kl. 12:00 og lokar kl. 18:30.
Hvað breytist?
Ekki verður lengur tekið við eftirfarandi flokkum á Dalvegi og í Jafnaseli. Íbúar þurfa að fara með þá á stærri endurvinnslustöðvar:
- Málað timbur
- Ómálað timbur
- Hjólbarðar
- Flísar
- Hreinlætistæki
- Rúðugler
- Gifs
- Möl og sandur
- Heyrúlluplast
- Grófur úrgangur, t.d. húsgögn og rúmdýnur
- Stórir málmhlutir, t.d. reiðhjól og gasgrill
Markmið breytinganna er að einfalda móttöku, stytta biðtíma og bæta nýtingu á svæðunum. Þær byggja á vinnu starfsfólks SORPU, sveitarfélaganna og stjórnar SORPU.
Stöðvarnar hafa um tíma verið orðnar of litlar til að anna fjölda gesta og fjölda flokka. Við opnun þeirra árið 1991 var gert ráð fyrir átta flokkum, en í dag eru þeir orðnir mun fleiri.