Upplifun íbúa á samgöngur og flokkun úrgangs
Reykjavíkurborg, í samstarfi við Háskóla Íslands, óskar eftir þátttöku í spurningakönnun sem er hluti af rannsókn sem snýr að venjum og hindrunum íbúa höfuðborgarsvæðisins í samgöngum og flokkun úrgangs.
Þátttakendur könnunarinnar geta skráð sig í happadrætti til að eiga möguleika að vinna gjafabréf. Dregin verða út tvö 25.000 kr. gjafakort.
Við viljum heyra frá þér! Taktu þátt og hafðu áhrif
Rannsóknin er hluti af alþjóðlegu styrktarverkefni sem ber heitið Tilraunaborgir; Þrætt í gegnum þrengslin. Verkefnið miðar að því að finna leiðir til að draga úr losun frá vegsamgöngum og úrgangi í borginni. Í könnuninni verður lögð áhersla á að kanna upplifun og skoðanir íbúa af nærumhverfi þeirra í borginni. Niðurstöður munu nýtast við þróun og prófun aðgerða sem geta stutt við breyttar venjur í samræmi við þarfir íbúa.
Hvernig get ég tekið þátt?
Íbúar eru hvattir til að taka þátt í spurningakönnun sem verður opin frá og með 5. mars. Með þátttöku gefst tækifæri til að hafa áhrif á framtíðaraðgerðir borgarinnar í umhverfismálum.
Persónuvernd og frekari upplýsingar
Öll gagnasöfnun fer fram í samræmi við persónuverndarlög og stefnu bæði Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands.
Nánari upplýsingar um verkefnið Tilraunaborgir; Þrætt í gegnum þrengslin
Spurningakönnun er aðgengileg á íslensku, ensku og pólsku: