Grunnskólar
Börn byrja í grunnskóla árið sem þau verða sex ára þegar skólaskylda hefst. Þau fá úthlutað plássi í sínum hverfisskóla og forsjáraðili þarf að staðfesta innritun rafrænt.
Er barnið þitt að byrja í grunnskóla?
Ef barnið þitt verður sex ára á árinu færð þú tölvupóst frá Reykjavíkurborg þar sem óskað er eftir að þú staðfestir skráningu barnsins þíns í ykkar hverfisskóla. En hvað er hverfisskóli?
Á þessari síðu færðu gagnlegar upplýsingar um skólabyrjun. Eins og til dæmis hvað börnin þurfa að taka með sér í skólann og hvort börnin fái mat á skólatíma.
Skóladagatal
Þú getur séð skóladagatal hvers grunnskóla á heimasíðum þeirra.
Skólamatur
Í vetur verða skólamáltíðir gjaldfrjálsar en mikilvægt er fyrir skólana að hafa áfram yfirsýn, halda utan um upplýsingar um ofnæmi og óþol og takmarka matarsóun. Því þarf eins og áður að skrá nemendur í mataráskrift.
Um er að ræða mismunandi leiðir eftir því hvort skólinn rekur eigið eldhús eða nýtur matarþjónustu utanaðkomandi aðila.
Hægt er að fá upplýsingar um mataráskrift á síðu viðkomandi skóla.
Skólavist í öðru sveitarfélagi
Þú getur sótt um að barnið þitt fari í skóla í öðru sveitarfélagi þótt það eigi lögheimili í Reykjavík. Sækja þarf um það fyrir 1. apríl ár hvert.
Að skipta um grunnskóla
Í Reykjavík er val um grunnskóla en ef takmarka þarf fjölda nemenda í einstaka skólum eiga nemendur forgang að sínum hverfisskóla.
Menntastefna Reykjavíkur - látum draumana rætast
Grunnskólar Reykjavíkurborgar vinna eftir aðalnámsskrá grunnskóla með Menntastefnu Reykjavíkurborgar til hliðsjónar. Meginmarkmið stefnunnar er að öll börn vaxi, dafni og uni sér saman í lýðræðislegu samfélagi sem einkennist af mannréttindum og virðingu fyrir fjölbreytileika mannlífs.
Í kraftmiklu skóla- og frístundastarfi öðlast börn og unglingar menntun og reynslu til að láta drauma sína rætast og hafa jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag. Menntastefnan byggir á fimm grundvallarþáttum: félagsfærni, sjálfseflingu, læsi, sköpun og heilbrigði.
Nýjustu fréttir
- Reykjavíkurborg hlaut alþjóðleg verðlaun fyrir umbreytingu á skólaþjónustu
- Samgöngur og samræmd próf ofarlega í huga á Lýðræðishátíð unga fólksins
- Umsækjendur um starf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs
- Bergs minnst sem frumkvöðuls í leikskólastarfi
- Snjallræði í Ráðhúsinu
- Samþykkt að byggja safnskóla í Laugardal