Íslenskuverðlaun unga fólksins afhent í tuttugasta sinn
Íslenskuverðlaun unga fólksins voru afhent við hátíðlega athöfn í Norðurljósasal Hörpu á degi íslenskrar tungu. Verðlaunin voru veitt í tuttugasta sinn og markaði athöfnin því sérstök tímamót í sögu þeirra.
Markmið verðlaunanna er að auka áhuga grunnskólanema í Reykjavík á íslenskri tungu og hvetja þá til framfara í tjáningu í töluðu og rituðu máli. Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er verndari verðlaunanna. 49 nemendur úr grunnskólum Reykjavíkur voru verðlaunaðir en þau voru veitt nemendum sem höfðu skarað fram úr í íslensku, sýnt metnað í námi sínu og áhuga á fjölbreytileika íslenskrar tungu.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur flutti ávarp í upphafi og kór Rimaskóla undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur flutti þrjú lög.