Vinnsla persónuupplýsinga við umsókn um grunnskóla í Nemendagrunni

Þessari síðu er ætlað að veita upplýsingar um þá vinnslu persónuupplýsinga sem á sér stað við umsókn um grunnskóla hjá Reykjavíkurborg í  Nemendagrunni. Reykjavíkurborg er ábyrgðaraðili vinnslunnar og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu er vinnsluaðili. Reykjavíkurborg hefur gert vinnslusamning við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) þar sem Nemendagrunnur er rekinn af MMS. 

Til þess að geta uppfyllt skyldur sveitarfélagsins hvað varðar skólaskyldu grunnskóla og til að vinna úr og leggja mat á umsókn þína í Nemendagrunni um grunnskólavist  fyrir barn þitt í grunnskóla Reykjavíkurborgar er sveitarfélaginu nauðsynlegt að vinna með nánar tilgreindar persónuupplýsingar um barnið, foreldra og aðra aðstandendur eftir því sem við á til samræmis við það sem fram kemur í þessari fræðslu.  

Unnið er með upplýsingar sem þú lætur af hendi í umsóknarferlinu og jafnframt þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru og sérstaklega eru tilgreindar. 

Teikning af Fjólu í frímínútum í ausandi rigningu með öðrum krökkum

Hver er tilgangur vinnslunnar?

  • Tilgangur vinnslunnar er að tryggja að uppfylltar séu kröfur laga um grunnskóla nr. 91/2008 hvað varðar skólaskyldu barna og skráningu þeirra í grunnskóla. Tryggja þarf að viðeigandi upplýsingar um skólaskyld börn í sveitarfélaginu og umsækjendur um skólavist berist tímanlega til þess að hægt sé að taka réttar ákvarðanir um skólavist þeirra og að þeim upplýsingum sé viðhaldið og þær uppfærðar til að tryggja aðra þjónustu við nemendur á skólagöngu þeirra. 
  • Umsókn foreldra um skólavist barns berst skólastjóra þess skóla sem sótt er um skólavist hjá. Gögnin eru vistuð í upplýsingakerfi skólans (Mentor/Námfús) þar sem aðgangur foreldra er stofnaður. Ef sótt er um skóla fyrir barn með lögheimili í Reykjavík í öðru sveitarfélagi þá fær Reykjavíkurborg fyrst aðgang að umsókninni til samþykktar eða höfnunar. Ef umsóknin er samþykkt þá berst hún þeim skóla sem er sótt um. Reykjavíkurborg er með aðgang og yfirlit yfir allar umsóknir í grunnskólum Reykjavíkurborgar. 
  • Reykjavíkurborg er nauðsynlegt að vinna með tilgreindar persónuupplýsingar á grundvelli lagaskyldu, það er að tryggja að uppfyllt sé skólaskylda barna á grunnskólaaldri, í samræmi við lög um grunnskóla nr. 91/2018.  Vinnsla  almennra persónuupplýsinga byggir á  3. og 5. tölulið 1. mgr. 9. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 og grunnskólalögum nr. 91/2008, auk þess opinbera valds sem borgin fer með, skv. sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011.  
  • Vinnsla viðkvæmra persónuupplýsinga byggir á 7. og 8. tölulið 1. mgr. 11. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.  
  • Veitir þú Reykjavíkurborg ekki umbeðnar upplýsingar getur það leitt til þess að ekki verði hægt að afgreiða umsókn þína. Tekið er fram að í lögum um grunnskóla kemur fram að foreldrum er skylt að veita grunnskóla upplýsingar um barn sitt sem nauðsynlegar eru fyrir skólastarfið og velferð barnsins.  

Vistun gagna

Persónuupplýsingar þínar og barnsins sem unnið er með í tengslum við skráningu í grunnskóla, eru geymdar ótímabundið á grundvelli lagaskyldu er hvílir á Reykjavíkurborg. Að tilgreindum tíma liðnum er skylt að afhenda Þjóðskjalasafni öll gögn sem unnið er með til varðveislu til samræmis við lög nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn. 

 

Teikning af gamalli tölvu að springa.

Hvaða persónuupplýsingar er unnið með?

Almennar persónuupplýsingar: 

  • Upplýsingar varðandi barnið: Nafn, kennitala, heimilisfang, póstnúmer, sveitarfélag, kyn,   nafn sem barn kýs að vera ávarpað með ef annað en nafn þess, val er á milli persónufornafna, núverandi leikskóli/skóli og tungumál. Upplýsingar um námsferil, fyrri skóla og bekki sem barnið hefur verið skráð í.  
  • Upplýsingar varðandi foreldra/forsjáraðila: Upplýsingar um foreldra eru sóttar í Þjóðskrá af mínum síðum á Ísland.is., nafn, kennitala, heimilisfang, póstnúmer, sveitarfélag, netfang, símnúmer, tungumál og upplýsingar um hvort foreldri þarf túlk. 
  • Upplýsingar sem verða til vegna notkunar á Island.is, s.s. þjónustuupplýsingar, annálaskrár og aðrar tæknilegar upplýsingar þ.m.t. IP tölur og útgáfur vafra til að tryggja öryggi og greina villur, sjá persónuverndarstefnu Island.is. 
  • Upplýsingar um aðstandendur: Fullt nafn, kennitala, símanúmer og tengsl. 

 

Viðkvæmar persónuupplýsingar:  

  • Upplýsingar varðandi barnið: Ofnæmi, óþol, hvort til staðar sé læknisfræðilegar greining sem skólinn þarf að kunna að bregðast við og hvort óskað sé aðstoðar við lyfjagjafir, stuðningsþarfir, sérúrræði eða fylgi samþættingu þjónustu í þágu farsældar, upplýsingar frá Barnavernd um tímabundið fóstur og umsókn um alþjóðlega vernd eða flóttafólk.  

Hvaðan koma upplýsingarnar?

Grunnupplýsingar eru sóttar úr Þjóðskrá Íslands í gegnum mínar síður á Ísland.is og til Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Umsækjandi veitir svo upplýsingar með umsókn um grunnskólavist.  

Teikning af kennara að skoða skóladagatalið

Hversu lengi eru persónuupplýsingarnar geymdar?

Reykjavíkurborg er skilaskyldur aðili skv. lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014. Skjöl eru afhent Þjóðskjalasafni að tilgreindum tíma liðnum í samræmi við framangreind lög. 

Mappa í glerkúpli.

Hvernig tryggjum við öryggi persónuupplýsinganna?

Reykjavíkurborg gætir öryggis persónuupplýsinga með viðeigandi skipulagslegum og tæknilegum ráðstöfunum, þ. á m. aðgangsstýringum og dulkóðun. Allt það starfsfólk borgarinnar sem kemur að vinnslu persónuupplýsinga umsækjanda er bundið þagnarskyldu.  

Miðlun persónuupplýsinganna til þriðju aðila 

Eins og greint hefur verið frá er Reykjavíkurborg skylt að tilgreindum tíma liðnum að afhenda Þjóðskjalasafni öll gögn sem unnið er með í tengslum við umsóknir um grunnskólavist.  

Gerður hefur verið vinnslusamningur við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem rekur Nemendagrunninn.  

Reykjavíkurborg mun að öðru leyti ekki miðla persónuupplýsingum þínum til annarra aðila nema borginni sé slíkt skylt á grundvelli laga, stjórnvaldsfyrirmæla eða dómsúrskurðar. Þá mun borgin ekki miðla persónuupplýsingum þínum utan Evrópska efnahagssvæðisins nema á grundvelli sérstakrar heimildar þar um og án þess að upplýsa þig um slíkt.  

Hverjir hafa aðgang að upplýsingum í Nemendagrunninum

  • Upplýsingarnar eru sendar til þess grunnskóla þar sem barnið á að hefja nám. Annað starfsfólk Reykjavíkurborgar sem þarf starfa sinna vegna að hafa aðgang fær hann og fara aðgangsstýringar eftir því sem þeirra aðgangsheimildir leyfa.  
  • Ef sótt er um skóla utan skólahverfis getur hverfisskólinn einnig fengið nauðsynlegar upplýsingar.  
  • Ef sótt er um grunnskóla í öðru sveitarfélagi getur það sveitarfélag fengið nauðsynlegar upplýsingar. 
  • Gögnin eru skráð í málakerfi sveitarfélagsins (Hlaðan) og náms- og upplýsingakerfi skólans (Mentor/Námfús) þar sem aðgangur fyrir foreldra og nemendur er stofnaður. Foreldrar skrá umsókn í Nemendagrunninn og sjá forsjáraðilar upplýsingar tengdar börnum sínum til samræmis við barnalög nr. 76/2003.  

Sjálfvirk ákvörðunartaka

Engin ákvörðun er tekin sjálfvirkt. Allar umsóknir eru metnar af starfsfólki. 

Réttindi þín

Þú kannt að eiga rétt til þess að fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem Reykjavíkurborg vinnur með í tengslum við umsókn þína. Þá kannt þú að hafa rétt til að andmæla vinnslunni, fá upplýsingarnar leiðréttar, krefjast þess að þeim verði eytt, að vinnslan verði takmörkuð og/eða að þú eða þriðji aðili fáir upplýsingar afhentar á tölvulesanlegu formi. Nánari upplýsingar um þessi réttindi þín má finna í persónuverndarstefnu Reykjavíkurborgar.

 

Kvörtun yfir vinnslu

Sérstök athygli er vakin á því að sért þú ósátt/ur við meðferð Reykjavíkurborgar á persónuupplýsingum þínum getur þú ávallt haft samband við persónuverndarfulltrúa Reykjavíkurborgar (personuverndarfulltrui@reykjavik.is) eða sent erindi til Persónuverndar (postur@personuvernd.is). 

Teikning af manneskju með fjórar hendur að sinna mörgum hlutverkum í einu.