Skólasóknarreglur

Teikning af fjórum regnhlífum í rigningu.

Foreldrar bera ábyrgð á að barn þeirra sæki skóla reglulega. Jafnframt bera þeir ábyrgð á námi barnsins og að fylgjast með námsframvindu þess í samstarfi við barnið sjálft og kennara. 

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar hefur sett fram verklag sem fylgja á þegar misbrestur verður á skólasókn barns í grunnskóla. 

Verklagið tekur til fjarveru vegna seinkoma, fjarvista, veikinda og leyfa. Verklagið tekur mið af lögum um farsæld barna og stigskiptum stuðningi og felur í sér virkt samstarf heimilis og skóla til að mæta þörfum barns.

 

Viðmið um skólasókn

Skólasókn er skilgreind sem:​

  • Viðunandi: Fjarvist í 9 daga eða færri.​

  • Hættumerki: Fjarvist í 10-17 daga.​

  • Langvarandi fjarvera: Fjarvist í 18+ daga.

Veikindi og leyfi eru talin í heilum dögum. Þetta á þó engöngu við þegar ekki liggja fyrir eðlilegar og viðeigandi skýringar á fjarvistum. Miðað er við 180 skóladaga á skólaári.​

Teikning af kennara að skoða skóladagatalið
Útreikningar fjarvistarstiga
Seinkoma
1 fjarvistarstig
Fjarvera úr kennslustund
1 stig fyrir 20 mínútur
2 stig fyrir 40 mínútur
3 stig fyrir 60 mínútur

Viðmið um skólasókn

Viðmið 1

10 fjarvistarstig vegna fjarveru, veikinda- eða leyfisstunda - 5 veikinda-/leyfisdagar

Umsjónarkennari ræðir við barn og haft er samband heim.

Viðmið 2

30-50 fjarvistarstig vegna fjarveru, 20 veikinda- eða leyfisstunda - 10 veikinda-/leyfisdagar. 

Umsjónarkennari kallar til annan sérfræðing innan skóla eða tengilið farsældar. Boðað er til fundar með foreldrum. Veitt er leiðsögn og útbúin áætlun um bætta skólasókn.

Viðmið 3

60-70 fjarvistarstig vegna fjarveru, 30 veikinda- eða leyfisstunda - 15 veikinda-/leyfisdagar.

Beiðni er send til lausnarteymis. Umsjónarkennari kallar til tengilið farsældar og/eða skólastjóra, fundað er með foreldrum. Áætlun um bætta skólasóknendurskoðuð í samvinnu við foreldra og umsjónarkennara.

Viðmið 4

80-100 fjarvistarstig vegna fjarveru, 40 veikinda- eða leyfisstunda - 20 veikinda-/leyfisdagar. 

Máli barns vísað til umfjöllunar í nemendaverndarráði. Aðkoma annarra kerfa skoðuð, svo sem skólaþjónustu, velferðarþjónustu og/eða heilbrigðiskerfis. Áætlun um bætta skólasókn endurskoðuð í samvinnu við foreldra og umsjónarkennara. 

Viðmið 5

110+ fjarvistarstig vegna fjarveru, 50 veikinda- eða leyfisstunda - 30 veikinda-/leyfisdagar. 

Skóli tilkynnir skólasókn til skóla- og frístundasviðs og barnaverndarþjónustu. Áætlun um bætta skólasókn endurskoðuð í samvinnu við foreldra og umsjónarkennara.

Hvað getur foreldri gert?

  • Kennt barninu þínu strax í leikskóla að hver dagur skiptir máli og að það skiptir máli að mæta á réttum tíma.​

  • Haldið reglu á háttatímum og gætt þess að barnið fái nægan svefn.​

  • Haft öll föt og gögn tiltæk fyrir barnið kvöldið áður svo sem bækur, ritföng, íþrótta- og sundföt.​

  • Auðveldað aðlögun með því að hitta nýjan kennara með barninu.​

  • Gætt þess að halda barninu ekki heima nema það sé raunverulega veikt. Höfuð- eða magaverkir geta verið merki um kvíða en þurfa ekki endilega að vera ástæða til að vera heima.​

  • Talað við kennarann ef barnið virðist kvíðið því að fara í skólann.​

  • Reynt að raska skóladeginum sem minnst vegna annarra erinda svo sem læknisheimsókna og öðru slíku.

Vissir þú?

  • ​Barn getur dregist aftur úr námi þótt það missi aðeins úr 1-2 daga á nokkurra vikna fresti.​

  • Ítrekaðar seinkomur í upphafi dags geta haft áhrif á nám, líðan og félagslega stöðu.​

  • Mikil fjarvera getur haft áhrif á allan námshópinn ef kennari þarf að aðstoða einstaka nemendur við að vinna upp tapaðar skólastundir.​

  • Góð skólasókn styður jákvæða sjálfsmynd nemanda í skólanum og getur verið einn af grundvallarþáttum vellíðunar barns í skóla.​

  • Góð skólasókn getur stutt við farsæld nemenda í framtíðarnámi og -starfi

Hafðu í huga

  • Gott og reglulegt samstarf við umsjónarkennara eykur traust og skilning.​

  • Umsjónarkennari gætir hagsmuna barnsins í skólanum.​

  • Skyldur umsjónarkennara og skólans er að fylgjast með og skrá mætingar. Þegar tilteknum stiga- eða dagafjölda er náð sem Skóla- og frístundasvið hefur skilgreint fer af stað ákveðið ferli.

  • Ef foreldri telur sig vanbúið til að sinna skyldum sínum gagnvart barni sem forðast að mæta í skóla er mikilvægt að muna að skólinn og þjónustueiningar borgarinnar eru til reiðu.​

  • Ef ekki tekst að leysa skólasóknarvanda með lausnum sem þessir aðilar leggja til er málinu vísað til Barnaverndar Reykjavíkur og skólayfirvalda.

  • Miðlæg þjónusta er til fyrir born, skóla og fjölskyldurnar í borginni. Þar er hægt að bóka viðtal ef þörf krefur.​