Skóla- og frístundastarf í fremstu röð í Reykjavík
Um áttatíu manns sem brenna fyrir menntamálum í Reykjavík koma saman í Ráðhúsinu mánudaginn 16. nóvember kl. 13.00 til að ræða hvernig megi koma skóla- og frístundastarfi í borginni í fremstu röð.
Um er að ræða skólastjórnendur og starfsfólk í leik- og grunnskólum borgarinnar, frístundastarfsfólk, fulltrúa foreldra og nemenda, fulltrúa frá Kennarasambandi Íslands og Heimili og skóla. Að auki munu kjörnir fulltrúar í borgarstjórn Reykjavíkur sem sitja í leikskóla- og daggæsluráði og skóla- og frístundaráði taka þátt í fundinum sem skóla- og frístundasvið skipuleggur.
Aukinn árangur og notkun gagna meðal umræðuefna
Fundurinn er að mestu byggður upp á borðavinnu þar sem rædd verða ólík efni sem tengjast menntamálum. Dæmi um umræðuefni er: aukinn árangur í læsi, stærðfræði og vísindum, íslenska sem annað mál, snemmtæk íhlutun og stuðningur, starfsþróun, starfsumhverfi, gæði skóla- og frístundastarfs og faglegt samstarf, samstarf heimila og skóla og notkun gagna.
„Menntamál eru undirstaða alls í þjóðfélaginu og þess vegna skiptir máli að eiga beint og milliliðalaust samtal við þá sem kenna í leik- og grunnskólunum okkar, vinna í frístundastarfi en líka foreldra. Við viljum auka námsárangur barnanna okkar og að skólarnir séu eftirsóttir vinnustaðir. Þetta er stórt markmið sem við í pólitíkinni leysum ekki ein. Þess vegna er öflugt samtal með þessum hópi góður grunnur að því að sækja fram í skólamálum í Reykjavík,“ segir Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar sem hefur skipulagt fundinn í samstarfi við Skóla- og frístundasvið.
Stórsókn í menntamálum í Reykjavík
Þann 17. september samþykkti borgarráð tvær tillögur um aðgerðir sem miða að því að blása til sóknar í menntamálum í Reykjavík. Önnur tillagnanna snýr að því að Skóla- og frístundasvið móti og leggi fram tillögur sem miða að því að bæta námsárangur í lesskilningi, stærðfræði og vísindalæsi. Hin tillagan snýr að fundinum og að eiga opið og beint samtal við kennara og starfsfólk í leik- og grunnskólum um sókn í menntamálum í borginni.
Í framhaldi af fundinum verður unnin samantekt og aðgerðaráætlun.