Skóla- og velferðarþjónusta

Teikning af Fjólu

Börn eru eins ólík og þau eru mörg. Sum börn þurfa á stuðningi að halda til að líða betur og nýta styrkleika sína sem best. Hjá Reykjavíkurborg starfar hópur fagaðila við skóla- og velferðarþjónustu sem veitir börnum og fjölskyldum þeirra markvissa ráðgjöf og stuðning í þágu farsældar barna.

Hvaða þjónusta er í boði?

Það er ýmis þjónusta í boði fyrir fjölskyldur sem þurfa á auknum stuðningi að halda. Farsældarþjónusta tekur mið af þörfum hvers og eins og getur verið í formi viðtala, funda eða námskeiða fyrir foreldra og börn. 

Dæmi um hluti sem getur verið gott að fá ráðgjöf og stuðning við eru:

  • Áhættuhegðun
  • Einbeitingarvandi
  • Hegðunarvandi
  • Samskiptavandi
  • Krefjandi heimilisaðstæður
  • Þroski, til dæmis mál- og hreyfiþroski
  • Nám og skólasókn
  • Andlegir erfiðleikar, til dæmis kvíði og depurð

Á ég rétt á skólaþjónustu?

Öll börn sem ganga í leik- og grunnskóla í Reykjavík eiga rétt á skóla- og velferðarþjónustu ef þau uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Lögheimili barnsins er í Reykjavík.  
  • Forsjáraðilar og starfsfólk skóla barnsins telja að barnið þurfi á stuðningi að halda til að geta notið leik- eða grunnskólagöngu sem best.

Spurt og svarað um skóla- og velferðarþjónustu

Hér finnur þú svör við ýmsum algengum spurningum um skóla- og velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar.

Hvernig sæki ég um skóla- og velferðarþjónustu?

Þú getur óskað eftir skóla- og velferðarþjónustu með því að ræða við tengilið eða deildarstjóra barnsins í leikskóla og tengilið eða umsjónarkennara barnsins í grunnskóla. Þú getur líka talað beint við aðila úr skóla- og velferðarþjónustu á miðstöð barnsins. Einnig er einfalt að bókað viðtal hjá ráðgjafa á miðstöð.

Teikning af tveim manneskjum að gróðursetja tré.

Hvar fer skóla- og velferðarþjónustan fram?

Markmiðið er að börn fái sem mest af þjónustu í nærumhverfi sínu. Það getur verið bæði innan leik- eða grunnskólans, í formi ráðgjafar og stuðnings á miðstöð og í einhverjum tifellum inni á heimili barnsins. 

Þarf greiningu til að fá ráðgjöf?

Nei. Nánari skoðun getur aukið skilning þinn og skólans á því hvernig sé hægt að mæta þörfum barnsins þíns. Að því sögðu þarf ekki formlega greiningu til þess að barn fái aðstoð í skólanum, heldur á skólinn að leitast við að mæta þörfum allra barna. Greining getur hinsvegar verið forsenda sérhæfðrar þjónustu, lyfjagjafar og umönnunargreiðslna.
 

""

Stuðningsþjónusta

Stuðningsþjónusta er útfærð eftir þörfum hvers og eins. Foreldrar fá stuðning við uppeldishlutverkið og börn fá stuðning til að auka virkni, bæta samskipti og efla sjálfstraust sitt. 

""

Atvinnutengt nám

Fyrir nemendur í 9. og 10. bekk grunnskóla sem, vegna sértækra örðugleika annarra en fötlunar, glíma við verulegar áskoranir í námi eða mikla vanlíðan í skóla. Verkefninu er ætlað að bæta líðan nemenda og gefa þeim tækifæri til þess að sýna hvað í þeim býr. 

Getum við aðstoðað?

Þarftu frekari aðstoð eða fannstu ekki það sem þú varst að leita að?

 

Þjónustuver borgarinnar getur aðstoðað þig í síma 411 1111, á netspjalli og í gegnum netfangið upplysingar@reykjavik.is.

 

Skólaþjónusta er veitt á grundvelli eftirfarandi laga og reglna:

Svör við algengum spurningum er að finna á Spurt og svarað um skólaþjónustu.