Börnin fara létt með stigana í Múlaborg
Börn og starfsfólk Múlaborgar eru búin að koma sér vel fyrir í nýju húsnæði leikskólans á 2. og 3. hæð í Ármúla 6. Í fyrstu voru ekki öll viss um hvernig gengi að reka leikskólann á þremur hæðum en reynslan hefur verið góð og nýju rýmin reynst vel.
Nota lyftuna lítið sem ekkert
„Það er líka skemmtilegt að fá að vera fyrst til að prófa eitthvað nýtt, eins og að vera á þremur hæðum. Börnin ganga upp og niður stigann eins og ekkert sé, við notum lyftuna lítið sem ekkert. Við sjáum líka ýmis spennandi tækifæri í stiganum en þurfum bara aðeins meiri tíma til að þróa og koma öllu því í framkvæmd sem við höfum í huga,“ segir Kalina Klopova, starfandi leikskólastjóri í Múlaborg.
Kalina segir að líklega hafi börnin verið þau sem tóku breytingunum hvað léttast, enda hafi þau fengið að vera virkir þátttakendur í flutningunum. „Við ræddum breytingarnar mikið, þau tóku þátt í að pakka saman leikföngum og fluttu sjálf hólfin sín. Við kvöddum Gamla Múla saman, þannig að allt var skýrt, fyrirsjáanlegt og vel undirbúið fyrir börnin. Ég held að við fullorðna fólkið höfum jafnvel haft meiri áhyggjur af breytingunum og þurft lengri tíma til að meðtaka þær en börnin. Unnið var í þéttri samvinnu við foreldra svo ég held að okkur hafi tekist vel að halda utan um þetta.“
Við ræddum breytingarnar mikið, þau tóku þátt í að pakka saman leikföngum og fluttu sjálf hólfin sín.
Bjart, rúmgott og góð hljóðvist
Kalina segir nýja húsnæðið bjart og rúmgott og að góð hljóðvist hafi vakið sérstaka ánægju. Loftgæðin séu sömuleiðis mjög góð. Um 97 börn eru nú í Múlaborg en húsnæðið rúmar fleiri og því er svigrúm til að fjölga börnum í leikskólanum á næstunni. Þótt breytingarnar hafi kallað á mikla vinnu segir Kalina ánægju með útkomuna. Það sem í upphafi hafi virst stór breyting hafi gengið vel og nýja húsnæðið reynst vel í daglegu starfi.
„Gamla húsið okkar fer nú í breytingaferli og verður tekið í gegn á næstunni. Við hlökkum mikið til að taka það aftur í notkun, enda á það hús sérstakan stað í hjörtum margra. Mjög margir starfsmenn hjá okkur hafa starfað í því húsnæði í yfir 20 ár,“ segir Kalina að lokum.