Íbúaráð Miðborgar og Hlíða - Fundur nr. 50

Íbúaráð Miðborgar og Hlíða

Ár 2024, fimmtudaginn, 23. maí, var haldinn 50. fundur íbúaráðs Miðborgar og Hlíða. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnarbúð og hófst kl. 16.59. Eftirtaldir fulltrúar voru viðstaddir: Geir Finnsson, Kolbrún Jarlsdóttir, Þórey Björk Sigurðardóttir, Hanna Björk Valsdóttir og Sigrún Tryggvadóttir. Einnig sat fundinn Hörður Heiðar Guðbjörnsson með rafrænum hætti og Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir sem ritaði fundargerð.  

Þetta gerðist:

  1. Umræðu um bætta lýsingu í Hljómskálagarðinum, er frestað. MSS24040145

  2. Umræðu um verkefni unglingavinnu og fegrun miðborgarinnar, er frestað. MSS24040146

  3. Lögð fram auglýsing umhverfis- og skipulagssviðs dags. 4. apríl 2024, um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skólavörðustígs 9. USK23110160

    Fylgigögn

  4. Lögð fram auglýsing umhverfis- og skipulagssviðs dags. 4. apríl 2024 um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Brautarholts 30. USK24020228

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 23. apríl 2024, ásamt fylgiskjölum um aðkomu íbúaráða að fjárfestinga- og viðhaldáætlun 2024 – 2028. MSS24040187

    Samþykkt að fela formanni íbúaráðs í samráði við fulltrúa ráðsins að vinna tillögur íbúaráðs Miðborgar og Hlíða að fjárfestingar- og viðhaldsverkefnum fyrir 31. maí nk.

    Fylgigögn

  6. Fram fer umræða um málefni hverfisins. MSS22090034

  7. Lagðar fram umsóknir styrkja úr Hverfissjóð Reykjavíkurborgar. MSS24030095 

    Samþykkt að veita verkefninu Rekstrarstyrkur Íbúasamtök miðborgar, styrk að upphæð kr. 100.000,-

    Samþykkt að veita verkefninu Rekstrarstyrkur Íbúasamtaka 3.hverfis, styrk að upphæð kr. 100.000.-

    Samþykkt að veita verkefninu Vorhátíð Austurbæjarskóla, styrk að upphæð kr. 200.000,-

    Samþykkt að veita verkefninu Vorhátíð Háteigsskóla, styrk að upphæð kr. 200.000,-

    Samþykkt að veita verkefninu Vorhátíð Hlíðaskóla og nágrennis styrk að upphæð kr. 200.000,-

    Samþykkt að veita verkefninu Yoga og Tónheilun á Klambratúni styrk að upphæð kr. 100.000,-

    Öðrum styrkumsóknum er hafnað.

    Sigrún Tryggvadóttir víkur af fundinum undir afgreiðslu á styrkumsókn fyrir verkefnið rekstrarstyrkur fyrir Íbúasamtök miðborgar Reykjavíkur.

    Þessi liður fundarins er lokaður með vísan til 7. gr. samþykktar fyrir íbúaráð Reykjavíkurborgar.

Fundi slitið kl. 18.28

Geir Finnsson Kolbrún Jarlsdóttir

Þórey Björk Sigurðardóttir Sigrún Tryggvadóttir

Hanna Björk Valsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð íbúaráðs Miðborgar og Hlíða frá 23. maí 2024