6. Mannréttindi, aukin þátttaka og bætt samtal við íbúa

Borg fyrir fólk

Markmið Græna plansins í samfélagsmálum.

Markmið Reykjavíkurborgar í mannréttinda- og lýðræðismálum er inngilding og að íbúar hafi tækifæri til þess að vinna með borginni að bættum lífsgæðum í umhverfi sínu.

  • Borgarbúum er ekki mismunað vegna uppruna, þjóðernis, stéttar, tungumáls, litarháttar, trúarbragða, lífs- og stjórnmálaskoðana, trúleysis, kyns, kynhneigðar, kynvitundar, kyntjáningar, kyneinkenna, aldurs, fötlunar, holdafars, líkamsgerðar, heilsufars, atgervis eða annarrar stöðu
  • Reykjavíkurborg hefur jafnræði borgaranna, öryggi og mannréttindi að leiðarljósi í öllu starfi, vinnur gegn margþættri mismunun og leggur áherslu á heildstæða sýn í þágu borgarbúa
  • Reykjavíkurborg hvetur til lýðræðislegrar þátttöku íbúa og styður við fjölbreyttar leiðir þeirra til að hafa áhrif á nærsamfélag sitt, ákvarðanatöku og stjórnun sveitarfélagsins
  • Lýðræðisferlar eru virkir út frá hringrás lýðræðislegra vinnubragða um að hlusta, rýna, breyta og miðla þar sem reglulegt gagnvirkt samtal við íbúa og hagsmunaaðila á sér stað. Þess er gætt að ná til alls konar fólks og fjölbreyttra hópa
  • Aðgengi allra borgarbúa að kosningum er tryggt með góðu aðgengi og auðskildu efni
  • Reykjavíkurborg vinnur að stafrænni umbreytingu sem auðveldar aðgengi að upplýsingum til allra hópa og gefur þeim rödd