Íbúaráð Háaleitis- og Bústaðahverfis
Ár 2024, þriðjudaginn 26. nóvember, var haldinn 54. fundur íbúaráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis. Fundurinn var haldinn í Norðurmiðstöð og hófst kl. 16.38. Eftirtaldir fulltrúar voru viðstaddir: Birkir Ingibjartsson, Bjarney Kristín Ólafsdóttir, Guðrún Elísabet Ómarsdóttir, Ívar Orri Aronsson og Sigurður Lúðvík Stefánsson. Eftirtaldir fulltrúar í íbúaráði Háaleitis- og Bústaðahverfis tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Friðjón Friðjónsson. Fundinn sátu einnig Arna Hrönn Aradóttir og Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á þjónustu Strætó bs. í Háaleitis- og Bústaðahverfi. MSS24110125
Valgerður Gréta Benediktsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 16. október 2024, með umsagnarbeiðni um drög að Ljósvistarstefnu Reykjavíkurborgar ásamt fylgiskjali. USK190115
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar, dags. 30. október 2024 - Fossvogsbakkar - Háubakkar - Laugarás - Stjórnar og verndaráætlun. MSS24110130
-
Fram fer umræða um fundartíma ráðsins í desember. MSS22090031
-
Lagt fram bréf Skipulagsgáttar, dags. 20. nóvember 2024, með umsagnarbeiðni Reykjavíkurborgar um tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040, Borgarlína 1. lota – Ártún-Fossvogsbrú. USK24080320
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um málefni hverfisins. MSS22090034
-Kl.18.20 víkur Bjarney Kristín Ólafsdóttir af fundi.
-
Lagðar fram til afgreiðslu umsóknir í Hverfissjóð Reykjavíkurborgar. MSS24030095
Samþykkt að veita Foreldrafélagi Breiðagerðisskóla styrk að upphæð kr. 200.000 vegna til að framkvæma verkefnið Betrumbætt menning, stemming innan bekkjar.
Samþykkt að veita Foreldrafélagi leikskólans Jörfa styrk að upphæð kr. 50.000 vegna til að framkvæma verkefnið Foreldrafélag leikskólans Jörfa.
Samþykkt að veita Foreldrafélagi Álftamýrarskóla styrk að upphæð kr. 200.000 vegna til að framkvæma verkefnið Fræðsla fyrir ungmenni og foreldra, forvarnir, samskipti og fíkniefni.
Samþykkt að veita Foreldrafélagi Réttarholtsskóla styrk að upphæð kr. 200.000 vegna til að framkvæma verkefnið Litahlaup Réttarholtsskóla.
Samþykkt að veita Foreldrafélagi Réttarholtsskóla styrk að upphæð kr. 30.000 vegna til að framkvæma verkefnið Vesti fyrir foreldrarölt.
Öðrum umsóknum hafnað.
Þessi liður fundarins er lokaður með vísan til 7. gr. samþykktar fyrir íbúaráð Reykjavíkurborgar.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 18.22
Birkir Ingibjartsson Ívar Orri Aronsson
Friðjón R. Friðjónsson Sigurður Lúðvík Stefánsson
Guðrún Elísabet Ómarsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð íbúaráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis 26. nóvember 2024