Íbúaráð Háaleitis- og Bústaðahverfis - Fundur nr. 51

Íbúaráð Háaleitis- og Bústaðahverfis

Ár 2024, þriðjudaginn 27. ágúst, var haldinn 51. fundur íbúaráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis. Fundurinn var haldinn í Norðurmiðstöð og hófst kl.16.33. Eftirtaldir fulltrúar voru viðstaddir: Birkir Ingibjartsson, Friðjón R. Friðjónsson, Sigurður Lúðvík Stefánsson, Bjarney Kristín Ólafsdóttir og Guðrún Elísabet Ómarsdóttir. Fundinn sat einnig Arna Hrönn Aradóttir. 
Elísabet Pétursdóttir ritaði fundargerð

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf velferðarsviðs dags. 13. ágúst 2024, um óbreytta setu fulltrúa foreldrafélaga í íbúaráði Háleitis- og Bústaðahverfis tímabilið 2024 – 2026. Guðrún Elísabet Ómarsdóttir foreldrafélagi Breiðagerðisskóla tekur sæti sem aðalfulltrúi og Herborg Ingvarsdóttir foreldrafélagi Fossvogsskóla tekur sæti sem varafulltrúi. MSS22080029

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf velferðarsviðs dags. 13. ágúst 2024, um að samkvæmt samkomulagi íbúasamtaka dags. 10. ágúst 2022, tekur Sigurður Lúðvík Stefánsson sæti sem aðalfulltrúi í íbúaráði Háaleitis- Bústaðahverfi tímabilið 2024 – 2026, í stað Gísla Kr. Björnssonar sem tekur sæti sem varafulltrúi. MSS22080029 

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 2. ágúst 2024, um samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs þann 26. júní s.l. um tillögu að hverfisskipulag Hlíða, hverfi 3.1. SN150530 

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 2. ágúst 2024, um samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs þann 26. júní s.l. um tillögu að hverfisskipulag Hlíða, hverfi 3.2. SN150531

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 1. ágúst 2024, um samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs þann 26. júní s.l. um tillögu að hverfisskipulag Hlíða, hverfi 3.3. Öskjuhlíðahverfi. SN150532

  6. Lagt fram fundadagatal íbúaráðs Háaleitis og Bústaðahverfis haust 2024. MSS22080127

    -    Kl. 16.40 tekur Ívar Orri Aronsson sæti á fundinum.

    Fylgigögn

  7. Fram fer kynning á Forvarnaráætlun barna og ungmenna 2024 - 2026. MSS24010139

    Fylgigögn

  8. Fram fer umræða um málefni hverfisins. MSS22090034 

  9. Lögð fram greinargerð dags. 29. júlí 2024, vegna styrks úr Hverfissjóð 2023, fyrir verkefnið forvörn gegn fíkniefnum. MSS23030157
    Þessi liður fundarins er lokaður með vísan til 7. gr. samþykktar fyrir íbúaráð Reykjavíkurborgar.

Fundi slitið kl. 18.07

Birkir Ingibjartsson Ívar Orri Aronsson

Friðjón R. Friðjónsson Sigurður Lúðvík Stefánsson

Bjarney Kristín Ólafsdóttir Guðrún Elísabet Ómarsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð íbúaráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis frá 27. ágúst 2024