Frostheimar
Frístundaheimili
Frostaskjól 6
Grandaskóli, Melaskóli og Vesturbæjarskóli
107 Reykjavík
Um Frostheima
Frístundaheimilið Frostheimar hefur umsjón með skipulagðri tómstundadagskrá fyrir börn í 3. og 4. bekk í Grandaskóla, Melaskóla og Vesturbæjarskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Tjörninni.
Forstöðumaður er Dórothea Ævarsdóttir
Aðstoðarforstöðumenn eru Haydeé Adriana Lira Núnez og Fannar Arnarsson
Lengd viðvera
Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Frostheimum frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Frostheimar eru lokaðir í vetrarleyfi skólans.
Ýmis gögn og tenglar
Gjaldskrá
Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira.
Myndir frá Frostheimum
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Frostheimum má finna á heimasíðum Grandaskóla, Melaskóla og Vesturbæjarskóla.
Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is