Vesturbæjarskóli
Grunnskóli, 1.-7. bekkur
Sólvallagata 67
107 Reykjavík

Skóladagatal Vesturbæjarskóla
Hér finnur þú skóladagatal Vesturbæjarskóla. Í skóladagatali eru skipulagsdagar skráðir ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir foreldra og forráðamenn.

Hvað er í matinn?
Flestir grunnskólanemendur eru í mataráskrift. Skólamatur kostar það sama í öllum skólum. Ekki þarf að greiða mataráskrift fyrir fleiri en tvö börn frá sama heimili. Hér getur þú fylgst með því hvað er á boðstólnum í mötuneyti Vesturbæjarskóla.

Um Vesturbæjarskóla
Í Vesturbæjarskóla er grunnskóli fyrir börn í 1.-7. bekk. 8.-10. bekkur er í Hagaskóla. Einkunnarorð skólans eru virðing, vellíðan og velgengni. Með það að leiðarljósi leggjum við áhersla á alúð, hlýju og áhuga á velferð nemenda og stuðlum þannig að jákvæðum skólabrag.
Frístundaheimilið Skýjaborgir er við Vesturbæjarskóla, safnfrístundin Frostheimar er fyrir nemendur í 3. - 4. bekk og félagsmiðstöðin Frosti er fyrir elstu nemendur skólans.
Skólastjórnendur
- Skólastjóri Margrét Einarsdóttir
- Aðstoðarskólastjóri Þóra Björk Guðmundsdóttir
- Deildarstjóri stoðþjónustu Hrefna Birna Björnsdóttir
- Deildarstjóri Guðlaug Elísabet Finnsdóttir
- Skrifstofustjóri Kalla Björg Karlsdóttir
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið skólans.
- Tengiliður Vesturbæjarskóla er: Hrefna Birna Björnsdóttir
- Verklagsreglur í Vesturbæjarskóla varðandi farsæld barna.
Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is
Er barnið þitt að byrja í grunnskóla?
Á þessari síðu færðu gagnlegar upplýsingar um skólabyrjun. Eins og til dæmis hvað börnin þurfa að taka með sér í skólann og hvort börnin fái mat á skólatíma.
Skólastarfsemi
Skólanámskrá
Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Vesturbæjarskóla? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í námi og starfi.
Starfsáætlun
Hvað er framundan í Vesturbæjarskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira.
Skólaráð
Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans.
Skólahverfi Vesturbæjarskóla
Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun. Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Vesturbæjarskóla.

Foreldrasamstarf
Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Foreldrafélag er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar.