Grandaskóli

Grunnskóli, 1.-7. bekkur

Keilugrandi 12
107 Reykjavík

""

Skóladagatal Grandaskóla

Hér finnur þú skóladagatal Grandaskóla. Í skóladagatali eru skipulagsdagar skráðir ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir foreldra og forráðamenn.

Teikning af litríkum skólatöskum.

Matur í grunnskólum

Skólamáltíðir eru gjaldfrjálsar veturinn 2024-2025 en mikilvægt er fyrir skólann að hafa áfram yfirsýn, halda utan um upplýsingar um ofnæmi og óþol og takmarka matarsóun. Því þarf eins og áður að skrá nemendur í mataráskrift.

Þeir nemendur sem voru skráðir í fyrra verða sjálfkrafa skráðir í áskrift en aðrir þurfa að skrá sig. Breyting á skráningu fer fram á matur.vala.is.

Teikning af Fjólu að borða mat í skólanum

Um Grandaskóla

Grandaskóli við Keilugranda hóf starfsemi sína haustið 1986. Skólinn stendur við sjávarsíðuna í vesturbæ Reykjavíkur. Í Grandaskóla er 1.-7. bekkur en 8.-10. bekkur er í Hagaskóla. Við skólann starfa um 35 kennarar og 17 aðrir starfsmenn.

Frístundaheimilið Undraland er við skólann, safnfrístundin Frostheimar er fyrir nemendur í 3.-4. bekk og félagsmiðstöðin Frosti er fyrir elstu nemendur skólans.

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Grandaskóla er: Guðbjörg Edda Hermannsdóttir 

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​

 

Er barnið þitt að byrja í grunnskóla?

Á þessari síðu færðu gagnlegar upplýsingar um skólabyrjun. Eins og til dæmis hvað börnin þurfa að taka með sér í skólann og hvort börnin fái mat á skólatíma.

Skólastarfsemi

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Grandaskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira. 

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Foreldrafélag  er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar. 

Skólahverfi Grandaskóla

Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun. Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Grandaskóla.

Teikning af húsum og persónu á hjóli