Isavia fer fram á stórfellt skógarhögg í Öskjuhlíð

Innanlandssvið Isavia krefst tafarlausrar fellingar um 2.900 trjáa í Öskjuhlíð og til vara 1.200 hæstu trjáa þar. Um er að ræða einn elsta samfellda skóg í Reykjavík, nánar tiltekið skóglendi Öskjuhlíðar frá svæðinu við Háskólann í Reykjavík að svæði kirkjugarðsins í Fossvogi og Perlunnar. Erindi þessa efnis var lagt fyrir borgarráð í dag og var samstaða um þá málsmeðferð að beiðnin færi til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar.
Ætla má að krafa Isavia nái að lágmarki til um helmings elsta og hæsta skógarins í Öskjuhlíð og um þriðjungs samfellds skógar þar í heild. Krafan varðar stórt svæði, skóg sem nýtur hverfisverndar í deiliskipulagi og svæði í Öskjuhlíð sem nýtur verndar sem borgargarður í aðalskipulagi. Auk þess er Öskjuhlíð á náttúruminjaskrá. Þá fellur umrædd trjáfelling undir lög nr. 111/2021 um mat á umhverfisáhrifum áætlana og framkvæmda en í lögunum er kveðið á um að varanleg skógareyðing sem taki til 0,5 hektara svæðis eða stærra falli undir flokk B í lögunum. Þar er átt við framkvæmdir sem kunna að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og metið er í Öskjuhlíð eins og hún gæti litið út eftir að búið væri að fella öll tré innan aðflugsflatarins, um 2.900 tré.hverju tilviki hvort háðar skuli umhverfismati.

Hér að ofan má sjá Öskjuhlíð eins og hún gæti litið út eftir að búið væri að fella öll tré innan aðflugsflatarins, um 2.900 tré.
Forsaga og fyrri trjáfellingar
Í samkomulagi Reykjavíkurborgar og ríkisins um flugvallarmál árið 2013 voru ákvæði um að vinna sameiginlega að stækkun flugstjórnarmiðstöðvar Isavia í Vatnsmýri, samþykkja deiliskipulag um ný lendingarljós og fella hæstu trén í Öskjuhlíð, með tilliti til flugöryggis. Í samkomulaginu sagði að þegar lokun NA/SV (Norð-austur/Suð-vestur) brautarinnar hefði verið staðfest yrðu ný lendingarljós tekin í notkun í samræmi við breytt deiliskipulag og nauðsynlegur fjöldi trjáa í Öskjuhlíð felldur í þágu flugstarfseminnar. Dráttur varð á lokun brautarinnar og þurfti Reykjavíkurborg að sækja efndir á samningnum fyrir dómstólum. Það mál vannst loks endanlega í Hæstarétti. Í kjölfarið var unnið í samræmi við samkomulagið, stækkun flugstjórnarmiðstöðvar framkvæmd og skógurinn í Öskjuhlíð grisjaður. Vorið 2017 voru felld liðlega 140 tré þar og næstu ár á eftir fjarlægð um 10 tré ár hvert í samráði Reykjavíkurborgar og yfirmanns Reykjavíkurflugvallar. Reykjavíkurborg hefur því talið að samkomulagið frá 2013 sé þegar að fullu efnt. Álítur hún fyrirliggjandi erindi eðlisbreytingu á verkefninu og að ný krafa Isavia til eyðingar skóglendis hefði í för með sér gjörbreytingu á ásýnd og eðli útivistarsvæðisins í Öskjuhlíð. Þá geta ofangreindar kröfur einnig varðað hæstu trén í Hljómskálagarðinum.

Hér er mynd sem gefur hugmynd um þann hluta skógarins í Öskjuhlíð sem hverfur eftir að búið er að fella öll tré innan aðflugsflatarins, um 2.900 tré, samkvæmt kröfu Isavia. Skógurinn sem hverfur er innan rauða afmarkaða svæðisins.
Ekki fallist á kröfuna án skipulagsbreytinga og umfangsmikils samráðs
Aðgerðir af þeim toga sem Isavia gerir kröfu um myndu kalla á verulegar breytingar á deiliskipulagi og hugsanlega endurskoðun aðalskipulags. Framkvæmdin sjálf væri háð reglugerð um framkvæmdaleyfi og leita þyrfti umsagna fjölda aðila, þar á meðal Náttúrufræðistofnunar þar sem svæðið er á náttúruminjaskrá. Var samþykkt á fundi borgarráðs í dag að senda erindi Isavia til umfjöllunar hjá umhverfis- og skipulagsráði áður en afstaða til þess verður tekin.

Hér hefur grafískri mynd Isavia, sem notuð er til grundvallar fyrir grafískar myndir Reykjavíkurborgar, verið skeytt saman við loftmynd úr Borgarvefsjá.