Yfirgnæfandi hluti barna í 8. til 10. bekk í Reykjavík reykja ekki, neyta ekki maríjúana og hafa ekki orðið ölvuð síðustu 30 daga. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem nefnist Ungt fólk og fjallar um hagi og líðan barna og unglinga sem Rannsókn & greining framkvæmdi síðastliðið haust. Þá hefur áhorf á klám dregist verulega saman síðustu tvö ár og meirihluta barna líður vel í skólanum.
Neysla áfengis og maríjúana ekki aukist
Neysla áfengis og maríjúana hefur ekki aukist að neinu marki þrátt fyrir ótta um að annað og reykingar eru að hverfa í þessum aldurshópi samkvæmt niðurstöðunum. Margrét Lilja Guðmundsdóttir, sem kynnti niðurstöðurnar fyrir starfsfólki Reykjavíkurborgar, segir þær mjög góðar hvað margt varðar og þau sem hafa látið sig málið varða megi vera stolt af árangrinum. „Niðurstöður Ungt fólk rannsóknanna hafa verið nýttar í nærumhverfi barna til að taka á því sem betur má fara, ekki eingöngu til að sporna gegn vímuefnaneyslu barna heldur nú einnig til að takast á við nýjar áskoranir líkt og nikótín- og koffínneyslu, andlega vanlíðan, skjátíma, það að börnin okkar fái nægan nætursvefn og svo lengi mætti áfram telja,“ segir Margrét Lilja.
Þrátt fyrir að margt jákvætt komi fram í niðurstöðunum er áhyggjur af hópnum sem ekki svarar könnuninni, því mögulega eru í þeim hópi þau börn sem sýna hvað mesta áhættuhegðun. Þá má einnig nefna áhyggjur af því að þeim börnum sem svara því til að foreldrar þeirra yrðu mjög eða algjörlega mótfallin því að þau myndu neyta áfengis hefur aðeins fækkað frá árinu 2020 sem bendir til þess að taumhald foreldra hafi heldur verið að slakna.
Helst að hafa áhyggjur af orkudrykkjum og samfélagsmiðlum
Helstu áhyggjuefnin snúa að skjátíma, nætursvefni, samfélagsmiðlum, koffíndrykkjum og nýjum tegundum nikótínneyslu en tvennt síðastnefnt er gjarnan beint að ungu fólki í markaðssetningu. Þrátt fyrir að árangur hafi náðst hvað varðar svefn unglinga þarf áfram að vinna að því að börn og unglingar sofi nóg þar sem of lítill nætursvefn hefur svo víðtæk áhrif líðan og námsárangur. Margrét Lilja telur að vinna þurfi markvisst með foreldrum til að styrkja börn sín gegn markaðsöflunum til að draga úr neyslu orkudrykkja og nikótíns. Niðurstöðurnar sýna að þau sem segjast drekka orkudrykki daglega og eru mikið á samfélagsmiðlum séu líklegri til að sofa minna.
Flest upplifa umhyggju og hlýju frá foreldrum
94% unglinga í 8. til 10. bekk segja auðvelt að fá umhyggju og hlýju frá foreldrum sínum og 82% segja auðvelt að eiga samræður um persónuleg málefni við foreldra sína. Foreldrar virðast heldur setja reglur um útivistartíma en hvað þau geri, heima eða annarsstaðar, og virðast sem foreldrar eiga auðveldara með að setja reglur ef lagaákvæði eru til staðar.
59% stunda íþróttir oftar en fjórum sinnum í viku
66% prósent unglinganna segja að þeim líði vel í skólanum, 78% líður vel í frímínútum og í hádegishléinu. Þá telja þau námið mikilvægara eftir því sem styttra er eftir af grunnskólagöngunni. 59% stunda íþróttir eða líkamsrækt fjórum sinnum eða oftar í viku. 58% taka þátt í skipulögðu tómstunda- og íþróttastarfi vikulega eða oftar og 35% mæta vikulega eða oftar í félagsmiðstöð. Virkni í íþrótta- og tómstundastarfi er mikilvægur verndandi þáttur og leggja þarf áherslu á að ná til þeirra sem ekki taka þátt í neinu skipulögðu starfi.
46% stráka segjast ekki skoða klám og 82% stelpna
Í frítíma sínum verja 50% af stelpum þremur klukkustundum eða meira á samfélagsmiðlum á dag og 28% stráka í tölvuleiki. Þá hefur hlutfall þeirra sem segjast aldrei skoða klám hækkað verulega. Þannig hefur hlutfallið hjá strákum hækkað úr 21% árið 2021 í 46% 2023 og hjá stúlkum hefur hlutfallið hækkað úr 58% í 82%. Eins hefur hlutfall þeirra sem hafa verið beðin um að senda ögrandi mynd af sér eða nektarmynd lækkað töluvert þó enn segi 44% stúlkna hafa fengið slíka beiðni og 12% stráka. Sömuleiðis hefur hlutfall þeirra sem hafa sent slíka mynd af sér minnkað talsvert.
Ánægð að búa í Reykjavík
Mikill meirihluti unglinganna í Reykjavík sögðu mikið og gott félagslíf í sínu sveitarfélagi og að þar væri gott að búa. 64% sögðust áfram vilja búa í sveitarfélaginu eða hverfinu sínu í framtíðinni.
Börn í 5. til 7. bekk
Lykiltölur barna í 5. til 7. bekk í Reykjavík sýna að 67% barna eiga marga vini í skólanum og 65% segjast oft eða stundum fá hrós frá kennaranum sínum. 23% segja námið oft eða alltaf vera skemmtilegt og segir Margrét Lilja mega velta fyrir sér hvað þau leggi í spurninguna og hvort að nám þurfi alltaf að vera skemmtilegt. „Við sjáum í niðurstöðum að bæði börnin á miðstigi sem og á unglingastigi meta námið síður mikilvægt og í því sambandi er gott að við fullorðna fólkið lítum í eigin barm. Að við skoðum hvernig við tölum um námið heima, hvernig fjallað er um skólann og námið í fjölmiðlum og hvort við séum að hvetja börnin okkar áfram í námi líkt og við getum til dæmis þegar kemur að íþrótta- og tómstundaiðkun barnanna okkar,“ segir Margrét Lilja.
Á samfélagsmiðlum þrátt fyrir ungan aldur
Börn í 5. til 7. bekk eru líka á samfélagsmiðlum og 18% þeirra meira en þrjár klukkustundir á dag þó að samfélagsmiðlar séu ekki ætlaðir 13 ára og yngri. Þá eyða 24% meira en þremur klukkustundum daglega í að spila tölvuleiki. 95% segjast eiga auðvelt með að fá hlýju og umhyggju frá foreldrum sínum og 98% líður oftast vel heima hjá sér. 51% æfa íþróttir fjórum sinnum eða oftar í viku, 29% stunda tónlistarnám einu sinni eða oftar í viku og 24% taka þátt í félags- eða tómstundastarfi að minnsta kosti einu sinni í viku
Rannsókn og greining framkvæmdi rannsóknina í tólf sveitarfélögum haustið 2023 og var svarhlutfall í 8. til 10. bekk 84% og 86% í 5. til 7. bekk.
Rannsóknir Rannsóknar og greiningar framkvæmdar hausið 2023: