Rimaskóli

Grunnskóli, 1.-10. bekkur

Rósarimi 11
112 Reykjavík

""

Skóladagatal Rimaskóla

Hér finnur þú skóladagatal Rimaskóla. Í skóladagatali eru skipulagsdagar skráðir ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir foreldra og forráðamenn.

Teikning af litríkum skólatöskum.

Matur í grunnskólum

Skólamáltíðir eru gjaldfrjálsar veturinn 2024-2025 en mikilvægt er fyrir skólann að hafa áfram yfirsýn, halda utan um upplýsingar um ofnæmi og óþol og takmarka matarsóun. Því þarf eins og áður að skrá nemendur í mataráskrift.

Þeir nemendur sem voru skráðir í fyrra verða sjálfkrafa skráðir í áskrift en aðrir þurfa að skrá sig. Breyting á skráningu fer fram á matur.vala.is.

Teikning af Fjólu að borða mat í skólanum

Um Rimaskóla

Rimaskóli var formlega stofnaður á fundi Fræðsluráðs Reykjavíkur 19. apríl 1993. Lokið var við byggingu Rimaskóla í fjórum áföngum um síðustu aldamót og við lokafrágang í nóvember árið 2001 var skólinn loks fullbúinn og formlega vígður. 

 Við upphaf skólaársins 2022 – 2023 voru skráðir rúmlega 500 nemendur við skólann í 1.-10. bekk og tæplega 80 starfsmenn. Einkunnarorð Rimaskóla frá upphafi hafa verið "Regla - Metnaður -Sköpun" sem kalla á að nemendur fari eftir þeim fáu en skýru reglum sem skólinn setur, jákvæður metnaður svífi yfir vötnum þegar námsárangur og þátttaka í verkefnum og keppnum er annars vegar og að sköpunargáfa og listfengi nemenda fái útrás með öflugri og fjölbreyttir kennslu á viðkomandi sviðum. 

Frístundaheimilið Tígrisbær er fyrir börn í 1.-4. bekk í Rimaskóla og félagsmiðstöðin Sigyn býður upp á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir börn og unglinga.

Skólastjóri er Þóranna Rósa Ólafsdóttir

Aðstoðarskólastjóri er Marta Karlsdóttir 

Deildarstjóri er Sigrún Garcia Thorarensen

Náms- og starfsráðgjafi er Sóley Rós Guðmundsdóttir 

 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Rimaskóla er: Jóhanna Kristín Snævarsdóttir

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​

Heildaráætlun Rimaskóla um stuðning við nemendur með fötlun eða sérþarfir, hegðunarörðugleika, tilfinninga- og félagsvanda
 

Er barnið þitt að byrja í grunnskóla?

Á þessari síðu færðu gagnlegar upplýsingar um skólabyrjun. Eins og til dæmis hvað börnin þurfa að taka með sér í skólann og hvort börnin fái mat á skólatíma.

Skólastarfsemi

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Foreldrafélag  er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar.

Stjórn foreldrafélags Rimaskóla 2023-2024

  • Dagný Edda Þórisdóttir formaður 
  • Ingibjörg Eva Þórisdóttir gjaldkeri
  • Jóhanna Lilja Holm
  • Heiðbjört Tíbrá Kjartansdóttir
  • Erla Ósk Guðmundsdóttir
  • Erla Bára Ragnarsdóttir
  • Kristín Birna Ólafsdóttir - Johnson
  • Aníta Björg Arnar Jónsdóttir
  • Björk Jónsdóttir
  • Silja Valdimarsdóttir
  • Auður Lorenzo
  • Pernilla Sif Olsen Gísladóttir
  • Jakob Þórðarson
  • Halldór Helgi Halldórsson

Netfang: foreldrafelagrimaskola@gmail.com

Skólanámskrá

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Rimaskóla? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í námi og starfi. 

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Rimaskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira. 

Skólaráð

Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans.

Fundargerðir skólaráðs

Skólahverfi Rimaskóla

Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun. Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Rimaskóla.

Teikning af blokk og leiktækjum á lóðinni.

Tímabundin undanþága frá skólasókn

Hér má nálgast beiðni um leyfi sem er þrír dagar eða lengra.