Til baka á starfasíðu

Umsjónarkennari í 1. bekk

Viltu vinna í skemmtilegum og fjölbreyttum starfsmannahópi?

Ef svo er þá er Hvassaleitisskóli að leita eftir metnaðarfullum umsjónarkennara í fyrsta bekk sem brennur fyrir velferð nemenda og framsæknu skólastarfi.

Fullt starf Hvassaleitisskóli 108
Sækja um

Í Hvassaleitisskóla er fjölbreyttur og hæfileikaríkur nemendahópur. Í hverjum árgangi eru tveir námshópar sem tveir umsjónarkennarar bera sameiginlega ábyrgð á. Við hvetjum til fjölbreyttra vinnubragða og leggjum áherslu á teymisvinnu. Samvinna kennara miðar að því að skapa metnaðarfullt námsumhverfi þar sem hver og einn nemandi fær sín notið.

Skólinn er leiðsagnarnámsskóli og starfar eftir agastefnunni “Jákvæður agi”. Á yngsta stigi er kennt eftir aðferðum Byrjendalæsis og á miðstigi eftir aðferðum Læsi fyrir lífið. Í skólanum er starfandi einhverfudeild sem gengur undir nafninu Meistaradeild og fléttast starfið þar inn í allt skólastarfið.

Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • annast kennslu og umsjón á yngsta stigi
  • vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
  • vinna samkvæmt stefnu skólans
  • vinna í teymi með öðru starfsfólki
  • önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina yngsta stigs
  • áhugi á að starfa með börnum
  • þekking á aðferðum byrjendalæsis æskileg
  • lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • ábyrgð, stundvísi og samviskusemi
  • íslenskukunnátta B2 samkvæmt samevrópskum matskvarða um tungumálaviðmið
  • skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð

Hlunnindi í starfi:

  • menningar- og bókasafnskort
  • samgöngustyrkur
  • sundkort
  • heilsuræktarstyrkur

Frekari upplýsingar um starfið

  • laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
  • hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
  • nánari upplýsingar um starfið veitir Iðunn Pála Guðjónsdóttir, skólastjóri (idunn.pala.gudjonsdottir@rvkskolar.is) eða í síma 411 7350
Sækja um