Til baka á starfasíðu

Verkefnastjóri | Inngilding og fræðsla

Viltu slást í öflugan hóp verkefnastjóra í miðlægri deild miðlunar og nýsköpunar hjá Borgarbókasafninu? 

Fullt starf Borgarbókasafnið Grófinni 101
Sækja um

Helstu verkefni og ábyrgð

Verkefnastjóri inngildingar og fræðslu leiðir verkefni er snúa að jaðarsettum hópum í samfélaginu og miða að því að kynna það sem Borgarbókasafnið hefur upp á að bjóða og virkja þau sem tilheyra þessum hópum til að notfæra sér þjónustuna, sækja viðburði og fræðslu og nýta söfnin sem stað til að tengjast öðru fólki.

Verkefnastjóri ber ábyrgð á innleiðingu og framkvæmd verkefna í samstarfi við deildarstjóra miðlunar. Hann sér um og ber ábyrgð á að verkferlar á þessu sviði séu skilgreindir, samræmdir og þeim fylgt innan safnsins.

Verkefnastjórinn heyrir undir deild miðlunar og nýsköpunar og vinnur þvert á allar starfsstöðvar Borgarbókasafnsins. Hann tekur þátt í að marka stefnu um verkefni á sínu sviði með stuðningi og í samstarfi við deildarstjóra miðlunar. Í því felst m.a. að hafa frumkvæði að og innleiða ný verkefni, eiga í samvinnu við fagaðila og félagasamtök á þessu sviði og sjá um skipulagningu og framkvæmd í samstarfi við verktaka og/eða starfsfólk.

Verkefnastjóri tekur á móti fyrirspurnum, veitir umsagnir og sinnir erindum er heyra undir málaflokkinn. Hann tekur einnig þátt í teymisvinnu þvert á svið og stofnanir borgarinnar og samstarfi við fagaðila innanlands og utan.

Fríðindi í starfi:

  • 36 stunda vinnuvika
  • Sundkort
  • Menningarkort
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngusamningur

Hæfniskröfur:

  • Háskólapróf á framhaldsstigi (MA/MS) og að lágmarki 2ja ára reynsla í verkefnastjórnun á sviði inngildingar og fræðslu eða; Háskólapróf á fyrsta stigi (BA/BS) auk að lágmarki 5 ára starfs- og stjórnunarreynslu á viðkomandi sérfræðisviði.
  • Metnaður, frumkvæði, skipulagshæfni, hugmyndaauðgi og sjálfstæði í starfi.
  • Gott menningarlæsi og reynsla af því að starfa með fjölbreyttum, jaðarsettum hópum.
  • Geta til að skipuleggja og innleiða ný verkefni.
  • Færni og geta til að vinna undir álagi og sinna mörgum viðfangsefnum.
  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki.
  • Gott vald á upplýsingatækni og -miðlun efnis á vef og samfélagsmiðlum.
  • Mjög gott vald á íslensku og/eða ensku og mikil hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, kunnátta í þriðja tungumáli kostur.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaður endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Um er að ræða 100% starfshlutfall.

Launakjör eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.  Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar veitir: Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar hjá Borgarbókasafninu, gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is, s. 411 6115.

Sækja um