Gönguvæn borg - 15 mínútna hverfi
Lýsing á aðgerð og markmið
Aðgerð Græna plansins
Í gegnum hverfisskipulag, endurnýjun hverfiskjarna og fjárfestingu í innviðum verði hverfi borgarinnar gönguvænni og aðgengi að grænum svæðum, útivist og þjónustu tryggt í 15 mínútna göngu- eða hjólafæri. Helstu markmið hverfisskipulagsins eru að gróin hverfi í borginni verði sjálfbærari og vistvænni en áður, íbúðum fjölgi og þægilegra verði fyrir húseigendur að gera breytingar á fasteignum sínum. Lokafrágangur á hverfisskipulagi fyrir Hlíðar, Háaleiti og Bústaði er áætlaður á fyrri hluta ársins. Á árinu 2024 hefst einnig vinna við undirbúning hverfisskipulags fyrir Grafarvog og Grafarholt að undangengnu samráðs- og kynningarferli.
Framkvæmdatími
Áætluð verklok eru á seinni helmingi ársins 2030
Stöðulýsing 1. júlí 2025
Hverfisskipulagi fyrir Árbæ, Breiðholt og Hlíðar er lokið. Gert er ráð fyrir að vinnu við hverfisskipulag Háaleitis og Bústaðahverfis og Grundarhverfis á Kjalarnesi klárist á árinu 2026. Í kjölfarið verður unnið að hverfisskipulagi í Laugardal og Vesturbæ. Einnig er stefnt að því að gera breytingu á samþykkt um leiðbeiningar hverfisskipulags þannig að þær geti gilt í öllum hverfum Reykjavíkur, óháð því hvort hverfisskipulag hafi tekið gildi eða ekki.
Eldri
| Tímasetning | Lýsing framvindu |
|---|---|
| Janúar 2024 | Hverfisskipulag fyrir Árbæ og Breiðholt er lokið. Hverfi sem eru í vinnslu eru Hlíðar, Háaleiti - Bústaðarhverfi og Laugardalur. |
| Júlí 2023 | Hverfisskipulag fyrir Árbæ og Breiðholt er lokið. Hverfi sem eru í vinnslu eru Hlíðar, Háaleiti - Bústaðarhverfi og Laugardalur. |
| Janúar 2023 | Neðra Breiðholt Seljahverfi og Efra Breiðholt lauk með auglýsingu í B deild stjórnartíðinda á árinu 2022. |
| Júlí 2022 | Hverfisskipulag fyrir Neðra-Breiðholt, Seljahverfi og Efra-Breiðholt tók gildi fyrri hluta árs 2022 og leysir af hólmi eldri deiliskipulagsáætlanir. Helstu markmið hverfisskipulagsins eru að gróin hverfi í borginni verði sjálfbærari og vistvænni en áður, íbúðum fjölgi og þægilegra verði fyrir húseigendur að gera breytingar á fasteignum sínum. |
Tenging aðgerðar við stefnur Reykjavíkurborgar:
Tengdar aðgerðir
Taflan hér fyrir neðan inniheldur þær aðgerðir sem tengjast þessari aðgerð og hægt er að nálgast frekari upplýsingar með því að smella á "heiti aðgerðar" í töflunni (ef þú ert í síma er betra að snúa símanum á hlið).
Tengdar aðgerðir
Markmið í umhverfismálum
- 1. Samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda | Græna planið Kolefnishlutlaus borg fyrir árið 2040 og aðlögun að loftslagsbreytingum með vistvænum hætti.
- 2. Aukin kolefnisbinding og efling grænna svæða | Græna planið Aukin ræktun, nýting og samtenging milli grænna svæða.
- 3. Borgin aðlöguð að áhrifum loftslagsbreytinga | Græna planið Vinna gegn loftslagsbreytingum og aðlögun að þeim.
- 4. Bætt aðgengi að heilnæmum útivistarmöguleikum og matvælum | Græna planið Áhersla á lýðheilsusjónarmið og aukinn borgarbúskap.
- 5. Vistvænar samgöngur | Græna planið Fjárfesting í samgönguinnviðum á grænum og fjölbreyttum forsendum.