3. Borgin aðlöguð að áhrifum loftlagsbreytinga
Græn borg
Markmið Græna plansins í umhverfis- og loftlagsmálum.
Markmið Reykjavíkurborgar um aðlögun að áhrifum loftlagsbreytinga til 2030 felast bæði í að vinna gegn loftlagsbreytingum og í aðlögun að þeim.
- Borgin aðlagast að breyttu veðurfari og aukinni úrkomu með náttúrumiðuðum lausnum við styrkingu innviða.
- Hafnarmannvirki og strandsvæði eru búin undir hækkandi yfirborð sjávar.
- Auknum kostnaði vegna ágengra tegunda er mætt.
Aðgerðir sem heyra undir markmiðið
Heiti aðgerðar | Staða | Verklok | Uppfært | Svið |
---|---|---|---|---|
Blágrænar ofanvatnslausnir | Lokið | 2022 | Janúar 2023 | Umhverfis- og skipulagssvið |
Flóðvarnir verði útivistarsvæði og garðar | Í vinnslu | 2025 | Janúar 2024 | Umhverfis- og skipulagssvið |
Markmið í umhverfismálum
- 1. Samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda | Græna planið Kolefnishlutlaus borg fyrir árið 2040 og aðlögun að loftlagsbreytingum verði með vistvænum hætti.
- 2. Aukin kolefnisbinding og efling grænna svæða | Græna planið Aukin ræktun, nýting og samtenging milli grænna svæða.
- 3. Borgin aðlöguð að áhrifum loftlagsbreytinga | Græna planið Vinna gegn loftlagsbreytingum og aðlögun að þeim.
- 4. Bætt aðgengi að heilnæmum útivistarmöguleikum og matvælum | Græna planið Áhersla á lýðheilsusjónarmið og aukinn borgarbúskap.
- 5. Vistvænar samgöngur | Græna planið Fjárfesting í samgönguinnviðum á grænum og fjölbreyttum forsendum.