Innköllun á fæðubótarefninu Ashwagandha KSM-66 frá CNP

Leanbody ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað frá neytendum fæðubótarefnið Ashwagandha KSM-66 frá CNP.
Fæðubótarefnið inniheldur 1000 mg af ashwagandha (Withania somnifera) extrakti í ráðlögðum daglegum neysluskammti og fer yfir mörk sem Matvælastofnun telur örugg til neyslu en þau eru 450 mg á dag.
Hver er hættan?
Matvæli sem innihalda ashwagandha extrakt yfir mörkum eru ekki örugg og geta verið heilsuspillandi.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: CNP
Vöruheiti: Ashwagandha KSM-66 Ashwagandha
Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: Allar best fyrir dagsetningar
Strikamerki: 5060547312047
Framleiðandi: CNP Professional Unit 11
Framleiðsluland: Bretland
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:
Leanbody ehf., Álfheimum 74, 104 Reykjavík í samstarfi við Parlogis.
Dreifing:
Varan var einungis seld í verslun Leanbody ehf., Álfheimum 74 (Glæsibæ).
Leiðbeiningar til neytenda:
Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í verslun Leanbody ehf., Glæsibæ.
Nánari upplýsingar um innköllun:
Nánari upplýsingar veitir Agnes Gestsdóttir hjá Leanbody ehf. í síma 896 0033 eða í gegnum netfangið agnes[hja]leanbody.is.