Gosmóða yfir höfuðborginni í bland við þokuloft

Umhverfi Heilbrigðiseftirlit

""

Samkvæmt Veðurstofu Íslands liggur gosmóða yfir höfuðborginni í bland við þokuloft.  Gosmóðan inniheldur mengun sem hefur náð að umbreytast og greinist hún því ekki með hefðbundnum mælingum á  brennisteinsdíoxíði (SO2).

Gosmóðan eða blámóða (Volcanic smog) er loftmengun sem verður til þegar SO2, önnur gös og agnir hvarfast við súrefni og raka með tilstuðlan sólarljóssins. Hún hefur einkennandi blágráan lit sem myndast er sólarljósið brotnar á ögnum/úða.

Gosmóða getur orsakað slen, höfuðverk, ertingu í augum og hálsi auk flensueinkenna. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu.  Þeir sem eru síður viðkvæmir geta einnig fundið fyrir einkennum.

Almennar ráðleggingar varðandi gasmengun eru eftirfarandi:

  • Lungna og hjartasjúklingar hafi sín lyf tiltæk
  • Andið sem mest með nefi og forðast líkamlega áreynslu utandyra í mikill mengun því það dregur úr þeim styrk sem kemst niður í lungu.
  • Dvöl innanhúss með lokaða glugga og slökkt á loftræstingu veitir verulega vörn fyrir menguninni.
  • Athugið að rykgrímur veita enga vörn gegn gasmengun
  • Ráðstafanir til varnar SO2 og annari gosmengun mengun innandyra
    • Lokaðu gluggum og minnkaðu umgengni um útidyr.
    • Hækkaðu hitastigið í húsinu.
    • Loftaðu út um leið og loftgæði batna utandyra.

Auk ofangreindra upplýsinga má finna ráðleggingar vegna heilsufarslegra áhrifa að völdum loftmengunar á síðu landlæknis:  https://www.landlaeknir.is/eldgos/ þar má einnig finna ný uppfærðar leiðbeiningabækling fyrir almenning (2. apríl 2021) Hætta á heilsutjóni vegna loftmengunar frá eldgosum og er hann aðgengilegur á íslensku, ensku og pólsku.

Íslenska. https://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item44804/Haetta%20a%20heilsutjoni%20vegna%20loftmengunar.pdf?fbclid=IwAR0NRxrx2K7-DR1ha5x3-7PHwvdokXVcqSLLRGvue-RBpfRHRb-aFL5i-FY

Enska. https://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item45005/Haetta%20a%20heilsutjoni%20vegna%20loftmengunar_EN%202.pdf?fbclid=IwAR0fsrXBmVKB15PSQShgSJeBBm8DPGQBhJQsuNleSuczQZH6qxGTf3fy9Ck

Pólska. https://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item45010/Haetta%20a%20heilsutjoni%20vegna%20loftmengunar_PO.pdf?fbclid=IwAR0ki3HB-hD3coU9zm-B85SkNzRzBD_TEh1AxE4umjWr5xEbgNqj1ttcdUE