Aukin mengun í vetrarstillum í borginni

Heilbrigðiseftirlit

Tvær manneskjur á gangi í Vatnsmýrinni í vetrarstillum. Hallgrímskirkja og göngubrúin yfir Miklubraut í baksýn.

Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) og svifryks (PM 10) mælist hár í borginni í dag, 15. desember, skv. mælingum í mælistöðinni við Grensásveg.  Klukkan 14:00 var klukkutímagildi köfnunarefnisdíoxíðs við Grensásveg 196,3 míkrógrömm á rúmmetra og á sama tíma var klukkutímagildi svifryks 105,0 míkrógrömm á rúmmetra. Köfnunarefnisdíoxíðmengun kemur frá útblæstri bifreiða og er að jafnaði mest á morgnana og seinni partinn þegar umferð er þung. Svifryk samanstendur af malbiksögnum, sóti, jarðvegi, salti og sliti úr hjólbörðum og bílhlutum og þyrlast upp þegar þurrt er.

Gert er ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og frosti í dag og umtalsverðar líkur á því að styrkur köfnunarefnisdíoxíðs fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk við Grensásveg, gildi svifryks geta einnig orðið mjög há.  Gert er ráð fyrir svipuðu veðri á morgun og er því mögulegt að þetta ástand verði viðvarandi.

Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru 75 míkrógrömm á rúmmetra en leyfilegt klukkustundargildi er 200 míkrógrömm á rúmmetra. Sólarhringsheilsuverndarmörk fyrir svifryk eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Hvatt til vistvænna samgöngumáta

Almenningur er hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins við þessar aðstæður, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðargatna. Köfnunarefnisdíoxíð og svifryk geta valdið ertingu í lungum og öndunarvegi. 

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk köfnunarefnisdíoxíðs, svifryks og annarra mengandi efna á www.loftgaedi.is.