Árbæjarskóli

Grunnskóli, 1.-10. bekkur

Rofabær 34
110 Reykjavík

Árbæjarskóli

Skóladagatal Árbæjarskóla

Hér finnur þú skóladagatal Árbæjarskóla. Í skóladagatali eru skipulagsdagar skráðir ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir foreldra og forráðamenn.

Teikning af litríkum skólatöskum.

Matur í grunnskólum

Skólamáltíðir eru gjaldfrjálsar veturinn 2024-2025 en mikilvægt er fyrir skólann að hafa áfram yfirsýn, halda utan um upplýsingar um ofnæmi og óþol og takmarka matarsóun. Því þarf eins og áður að skrá nemendur í mataráskrift.

Þeir nemendur sem voru skráðir í fyrra verða sjálfkrafa skráðir í áskrift en aðrir þurfa að skrá sig. Breyting á skráningu fer fram á matur.vala.is.

Teikning af Fjólu að borða mat í skólanum

Um Árbæjarskóla

Árbæjarskóli er einn stærsti grunnskóli landsins, staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Skólinn á sér rúmlega 50 ára starfssögu. Á árunum 1956 – 1966 var Árbæjarskóli starfræktur í samkomuhúsi á Árbæjarblettinum þar sem kennt var í þremur deildum en haustið 1967 hóf skólinn göngu sín í nýju húsi með 421 nemanda.

Í dag er Árbæjarskóli grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Hann er einsetinn og eru nemendur hans 700 talsins. Skólinn er safnskóli á unglingastigi en þá koma til náms nemendur úr Árbæjarskóla, Ártúnsskóla og Selásskóla. Starfsmenn skólans eru um 100 sem sinna mismunandi störfum í þágu nemenda.

Með stjórnun skólans fara auk skólastjóra, tveir aðstoðarskólastjórar, tveir deildarstjórar, nemendaráð og skólaráð.

Frístundaheimilið Töfrasel er fyrir börn í 1-4 bekk í Árbæjarskóla og félagsmiðstöðin Ársel býður upp á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir börn og unglinga.

Er barnið þitt að byrja í grunnskóla?

Á þessari síðu færðu gagnlegar upplýsingar um skólabyrjun. Eins og til dæmis hvað börnin þurfa að taka með sér í skólann og hvort börnin fái mat á skólatíma.

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Árbæjarskóla er: Rannveig Þorvaldsdóttir

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​
 

Skólastarfsemi

Lotuskiptingar list- og verkgreina

Hér má sjá lotuskiptingar í list- og verkgreinum 1.–8. bekk. 

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Árbæjarskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira. 

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Foreldrafélag  er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar.

Við Árbæjarskóla starfar öflugt foreldra félag sem hefur það að markmiði að styðja skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla.  Foreldrafélag hvers skóla setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa í skólaráð.

Stjórn foreldrafélagsins skipa eftirtaldir aðilar:

  • Hildur Jóna Friðriksdóttir, formaður
  • Vera Sveinbjörnsdóttir, gjaldkeri
  • Ester Hlíf Sigurðardóttir
  • Elísabet Eydís Leósdóttir
  • Andri Már Sigurðsson
  • Ásta Skúladóttir

Netfang: foreldrafelarb@gmail.com

Skólaráð

Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans.

Skólaráð Árbæjarskóla 2023–2024:

Fulltrúi stjórnenda:

Fulltrúar kennara:

Fulltrúi starfsfólks:

Fulltrúar foreldra:

Fulltrúar nemenda:

  • Jón Kristófer Ólason, 10. bekk
  • Iga Nowicka, 9. bekk 
  • Atli Atlason, 7. bekk
  • Magdalena Rós Ásgeirsdóttir, 6. bekk 

Fulltrúi grenndarsamfélags:

Fulltrúi frístundamiðstöðvarinnar Ársels:

Undanþága frá skólasókn

Hér má nálgast beiðni um leyfi í 3-5 daga fyrir nemendur.

Hér má nálgast beiðni um leyfi sem er umfram eina viku. 

Skólahverfi Árbæjarskóla

Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og lögheimili barnsins ræður því í hvaða hverfisskóla það fer. Barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun. Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Árbæjarskóla.

 

Teikning af byggingum, bíl, hjóli og hlaupahjóli.