Grandaborg

Leikskóli með ungbarnadeild

Boðagrandi 9 / Fornhagi 8
107 Reykjavík

Framkvæmdir

Framkvæmdir standa yfir í leikskólanum Grandaborg og er hann staðsettur í aukahúsi á lóð Hagaborgar við Fornhaga. Endanleg tímaáætlun og lok framkvæmda liggja ekki fyrir að svo stöddu.

Um leikskólann

Opnunartími Grandaborgar er frá 7:45 til 16:30

Leikskólinn Grandaborg hóf starfsemi sína í maí árið 1985. Hann er til húsa í vesturbæ Reykjavíkur í næsta nágrenni við íþróttasvæði KR, sundlaug Vesturbæjar og Grandaskóla. Stutt er einnig í miðbæ Reykjavíkur þar sem hægt er t.d. að heimsækja endurnar á tjörninni. Leikskólinn skiptist í fjórar deildir þar sem 75 börn geta dvalið samtímis. Deildirnar bera nöfn úr nánasta umhverfi, sem er náttúran, fjaran og sjórinn og kallast Fjöruvík, Klettavík, Skeljavík og Ölduvík. Starfsmenn Grandaborgar eru 25.

Leikskólastjóri er Helena Jónsdóttir

 

Viltu vita meira?

Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans. 

Hugmyndafræði

Einkunnarorð Grandaborgar eru vinátta, samkennd og virðing

 

Í Grandaborg er unnið úr frá stefnu Heilsuleikskólans, en markmið stefnunnar eru að stuðla að jákvæðu viðhorfi gagnvart heilsusamlegum lífsstíl, hugmyndafræði John Dewey um reynslu, áhuga og virkni ásamt þarfapíramída Abraham H. Maslow um þróun sjálfsmyndar. Útinám og umhverfismennt er stór þáttur í leikskólastarfi Grandaborgar en þar er lögð áhersla á að börnin verði læs á umhverfi, hvort sem það er nærumhverfi leikskólans eða aðrir staðir sem heimsóttir eru. 

Leikskólastarf

Skólanámskrá

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Grandaborgar? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi. 

Starfsáætlun

Hvað er framundan á Grandaborg? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira. 

Skóladagatal

Hvenær eru starfsdagar í Grandaborg? Í skóladagatali finnur þú upplýsingar um frídaga í leikskólanum og ýmislegt fleira. 

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi. Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar. 

Lítið hús til að leika sér í á leikskólalóð Grandaborgar

Miðstöð Grandaborgar

Leikskólinn Grandaborg tilheyrir Vesturmiðstöð. Vesturmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta.   

 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. 

Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. 

Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Grandaborgar er: Karen G. Elísabetardóttir