Vika6

Ungur karl í litríkum fötum með fána hinsegin fólks.

Vika6 er kynfræðsluátak fyrir ungmenni sem fer fram í sjöttu viku hvers árs. Ungmenni borgarinnar velja sjálf þema hvers árs og útbýr Jafnréttisskólinn fræðsluefni út frá því. Starfsfólk leikskóla, grunnskóla, félagsmiðstöðva og frístundaheimila er hvatt til að setja kynheilbrigði í forgrunn og bjóða upp á fjölbreytta kynfræðslu sem miðar að aldri og þroska ungmennanna.

Önnur sveitarfélög eru hjartanlega velkomin að taka þátt.

2026: Öryggi og ofbeldi

Þema Viku 6 árið 2026 var öryggi og ofbeldi. Í tilefni átaksins útbjó Jafnréttisskólinn fræðslumyndbönd í samstarfi við UngRÚV, fræðslupakka, umræðuspurningar, hugmyndir að verkefnum og veggspjöld. Fræðsluefninu fylgir einnig foreldrabréf á ýmsum tungumálum.

Fyrir átakið voru einnig útbúin umræðuspjöld um kynheilbrigði sem eru tilvalin í félagsmiðstöðvar. Umræðuspjöldin eru aldursskipt fyrir 5.–7. bekk og 8.–10. bekk.

Teikning af tveimur konum sem halda utan um hvora aðra.

Fræðslupakkar 2026

Á hverju ári gefur Jafnréttisskólinn út fræðslupakka út frá þema ársins fyrir hvern aldurshóp. Hægt er að vinna með efnið á fjölbreyttan hátt út frá aldri og þroska hvers barnahóps. Pakkarnir innihalda fræðsluefni, ráð og kennsluhugmyndir.

Fræðslupakki leikskóla
Fræðslupakki yngsta stigs
Fræðslupakki miðstigs
Fræðslupakki unglingastigs
Fræðslupakki félagsmiðstöðva
 

Fylgiskjöl

Foreldrabréf eru fylgiskjöl til að senda foreldrum til upplýsinga um átakið á ýmsum tungumálum.

Foreldrabréf íslenska
Foreldrabréf enska
Foreldrabréf pólska
Foreldrabréf filippeyska
Foreldrabréf úkraínska
Foreldrabréf arabíska
Foreldrabréf kúrdíska

 

Spurt og svarað

Kynfræðsla snýst um að efla kynheilbrigði barna og ungmenna þar sem rýnt er í félagslega, tilfinningalega, líkamlega og andlega þætti. Kynfræðsla er mikilvæg forvörn gegn áreitni, kynbundnu ofbeldi og kynferðisofbeldi þar sem nemendur læra muninn á heilbrigðum og óheilbrigðum samskiptum, að setja og virða mörk og að bera virðingu fyrir sér og öðrum.

Eðlilegt er að ýmsar spurningar vakni þegar kemur að kynfræðslu. Hér að neðan má finna svör við ýmsum spurningum og ráð um kynfræðslukennslu. 

- Skoða spurt og svarað

Teikning af hjónum með ungling á milli sín.